Fréttablaðið - 13.09.2011, Side 40

Fréttablaðið - 13.09.2011, Side 40
13. september 2011 ÞRIÐJUDAGUR24 BAKÞANKAR Kolbeins Óttarssonar Proppé ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta LÁRÉTT 2. dylja, 6. hætta, 8. iðn, 9. næra, 11. ónefndur, 12. liðsemi, 14. krafsa, 16. bardagi, 17. lík, 18. fálm, 20. tveir eins, 21. heimili. LÓÐRÉTT 1. þræðir í vefnaði, 3. hvort, 4. drottinsvik, 5. beita, 7. ákvörðun, 10. einkar, 13. gláp, 15. nabbi, 16. ái, 19. í röð. LAUSN LÁRÉTT: 2. fela, 6. vá, 8. fag, 9. ala, 11. nn, 12. fylgd, 14. klóra, 16. at, 17. nár, 18. fum, 20. ðð, 21. inni. LÓÐRÉTT: 1. ívaf, 3. ef, 4. landráð, 5. agn, 7. ályktun, 10. all, 13. gón, 15. arða, 16. afi, 19. mn. Farðu og plokkaðu þig Heiður – þú spilar með berum. Haha! Náði mér niðri á þér! Hvað er málið? Af hverju bendir hann á jörðina? Ætti hann frekar að lakka á sér neglurnar? Auð- vitað! Má ég smakka salatið? Palli, maturinn verður til eftir tíu mínútur. Ég held að þú sért orðinn nógu gamall til að sýna smá stillingu, ekki satt? Hvort var þetta já eða nei? Náði þér Hannes! Haha! Mikið hefur verið rætt og ritað um árás hryðjuverkamanna á skotmörk í Bandaríkjunum 11. september 2001. Skyldi engan undra; um hræðilega atburði var að ræða sem haft hafa mikil áhrif á heims- byggðina. Nú, tíu árum síðar, er hins vegar grátlegast að líta yfir farinn veg og sjá þau tækifæri sem glatast hafa til að gera heiminn sem við öll búum í að betri stað. Þeim var fórnað á altari eigin hagsmuna, hefndarþorsta og gamaldags heimsmyndar. Leiðtoga heimsins skorti áræði og þor til að breyta til hins betra. ÞAR eru Íslendingar engin undantekning. Stjórnvöld hér á landi studdu hefndarárás Bandaríkjanna á Afganistan. Árás sem var illa skipulögð og – líkt og svo oft áður – algjörlega laus við áætlun um hvað tæki við þegar, og ef, vopnin hljóðnuðu. Sam- kvæmt skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum féllu 2.777 almennir borgarar í Afganistan árið 2010. Fyrstu sex mánuði ársins 2011 eru þeir 1.462. Óbreyttir borgarar sem féllu í árásum hryðjuverkamannanna á Banda- ríkin voru 2.977. Enginn þeirra saklausu borgara sem fallið hafa í Afganistan bar ábyrgð á þeim árásum. Þeim var fórn- að á altari hagsmuna Bandaríkjanna. Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn. INNRÁSIN í Írak er síðan sér- kapítuli út af fyrir sig. Þeir íslenskir ráðamenn sem hana studdu munu seint geta þvegið skammarstimpilinn af sér. Ekki þurfti nema grunnskólaþekkingu á heimsmálum til að sjá í gegnum málatilbúnað innrásaraðila. Því miður bjuggu þeir sem um véluðu ekki yfir þeirri þekkingu. Eða bjuggu yfir henni en kusu að ljúga. INNRÁSARAÐILAR hafa ekki einu sinni haft fyrir því að telja saman hve mörg sak- laus mannslíf aðgerðir þeirra hafa kostað. Sömu aðilar og vita upp á hár hve margir Bandaríkjamenn féllu 11. september yppta öxlum og telja mannfall í Írak hjóm eitt. Töl- urnar þar eru á bilinu 100 þúsund til rúm- lega 1 milljón, allt eftir því hver telur og hvernig mannfall er skilgreint. Þetta studdu formenn Framsóknar- og Sjálfstæðis flokks, innblásnir af lygum hagsmunaaðila. Og hafa ekki enn svarað fyrir. HEIMURINN breyttist 11. september 2001 er viðkvæði sem heyrist oft. Því miður er það ekki rétt. Sannleikurinn er nefnilega sá að heimurinn breyttist ekkert. Gamal- dags hugsunarháttur ofbeldis og skiptingar í „okkur“ og „hina“ festist í sessi. Það eina sem breyttist var birtingarmynd þess hugs- unarháttar. OG jú, fyrir þau hundruð þúsunda sem hafa fallið fyrir vestrænum vopnum breyttist heimurinn vissulega. Þau voru myrt með blessun alþjóðasamfélagsins. Hvenær þeim verður reistur minnisvarði er hins vegar ekki vitað. Hinn óbreytti heimur Heimir & Kolla vakna með þér í bítið Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00 Þráinn á tökkunum og Gissur með fréttirnar Meiri Vísir. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á vísi. Á Veiðivísi, nýjum veiðivef Vísis, getur þú nálgast helstu fréttir, ítarlega umfjöllun og gagnlegar upplýsingar um veiði, hvort heldur sem er stangveiði eða skotveiði. Fylgstu með í sumar og nýttu þér allt sem Vísir hefur upp á að bjóða.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.