Faxi - 01.12.1972, Side 12
að nemendur yfirgæfu skóla sína með
sama hugarfari og hann yfirgaf þennan
skóla, sem á aldarafmæli núna. „Mér er
það efunarlaust mál, að þau hjónin, Einar
og Matthildur, voru ágætir kennarar, og
ég efa það ekki heldur, að það var fyrir
áhrif frá GerðaSkóla, að ég bauzt í það,
umkomulaus og vesæll, að reyna að afla
mér rneiri menntunar. Sennilega er það
fyrir þau áihrif, að ég hef orðið þó það,
sem ég hef verið“.
Þegar Sveinn kom síðan aftur að þess-
um skóla, eftir 38 ár, þá sem kennari,
sagði 'hann, að andað hefði á móti hon-
um vinsemd og hlýju. Sú vinsemd entist
honum í þau 11 ár, sem hann kenndi héi
og ef til vill sagði Sveinn, að honum ent-
ist hún enn.
„Kæru Garðbúar, ég er ykkur óum-
ræðilega þakklátur fyrir alla þessa hlýju
og allt sem þið gefðuð fyrir mig á meðan
ég var hérna. Viljið þið muna það, að
það er kennurunum einhver mesta upp-
örvun og gerir þá áð betri kennurum, að
eiga samúð og vináttu fólksins, og að
hagur fólksins standi í kringum skólann
og sé honum vinveittur“.
Að lokum þakkaði Sveinn samkenn-
urum sínum og öðrum þeim, sem með
skólamál fóru, fyrir góða viðkynningu,
og svo Garðbúum öllum. Einnig minnt-
ist Sveinn á barnastúkuna og gat Unu
Guðmundsdóttur þar sérstaklega fyrir
hennar óeigingjarna starf í þágu Regl-
unnar.
ÞORSTEINN GÍSLASON, kennari
og fyrrum skólastjóri, vildi ekki láta
Þorstcinn Gisloson
hjá líða áð þakka ágætt boð og veitingar.
Rifjaði Þorsteinn upp gamlar minningar
frá Gerðaskóla, þegar hann var nemandi
þar og einnig frá skólastjóraárum sínum,
og kom þar margt skemmtilegt fram. Af
samkennurum sínum þakkaði hann Hall-
dóru Ingibjörnsdóttur fyrir það fordæmi,
sem hún hefur gefið í þau 28 ár, sem
hún hefur starfað við Gerðakóla, með
sinni ástundun, samvizkusemi og stund-
vísi. Það eru beztu einkenni til eftir-
breytni fyrir nemendur og kennara. Þor-
steinn óskaði Gerðaskóla til hamingju á
þessum tímamótum og vonaði að gæfa
og gengi fylgdi honum á ókomnum árum.
Frú Ásdís Kóradóttir
FRÚ ÁSDÍS KÁRADÓTTIR sagði í
upphafi ræðu sinnar, að hvert einasta
foreldri óskaði þess að barnið sitt yrði
hamingjusamt, og reyndi að leiðbeina því
og gefa því það bezta sem það á, í veg-
arnesti. Hún sagðist vilja minnast á það
við foreldrana, að þótt skólarnir væru
góðir nú, þá jafnaðist ekkert á við það
nám og þau áhrif, sem börnin fá frá
foreldrum sínum. Skólar og heimili þyrftu
að vinna saman og koma til móts við
hvort annað til þess að auðga og þroska
barnið og til þess að móta það og gera
það að hæfum einstaklingi.
„Þegar ég lít til baka minnist ég þess,
að foreldrar mínir lögðu mikla rækt við
að vekja hjá okkur börnunum ættjarðar-
tilfinningu, — ættjarðarástina. Þau
kenndu okkur kvæði og ljóð eldri skáld-
anna, sem enn eru sungin, og þessi ljóð
og kvæði munum við“, sagði Ásdís, og
vildi minnast á það við foreldrana, að
rækta ættjarðarástina með börnum sín-
um. Það væri ein dýrasta perlan, sem
hægt væri að eignast.
SIGURBERGUR H. ÞORLEIFSSON,
hreppstjóri, sagði m.a., að atvikast hefði
svo, að það hefði komið í hans hlut að
taka þátt í störfum skólans, í lok hvers
kennslutímabils, í um 25 ár. Á þessu
tímabili sagðist hann hafa hlotið dýr-
mæta reynslu og honum verið mikill á-
vinningur að kynnast og starfa með
skólastjórum og kennurum skólans.
„Mínar ljúfustu minningar frá starfi mínu
við skólann, er samstarfið og kynningin
við æskuna — börnin. Það er orðinn
stór hópur, sem ég hef átt samleið með
öll árin. Þáð birtir yfir og vermir, að
njóta áhrifa frá þessu tímabili, að finna
gleðina og sakleysið. í þessu sambandi
get ég tileinkað mér spakmæli, sem er á
þessa leið: „Gleðibros barnsins er svipað
og morgunroðinn, sem kastar geislum sín-
um yfir blómskrýdd engi“. Við stöndum
í mikilli þakkarskuld við þá menn, sem
stofnuðu skólann, og þáð fólk, sem
hefur lagt fram krafta sína og kennt við
skólann. Sennilega er ekkert starf í þjóð-
félaginu jafn vandasamt og starf kenn-
ara og krefst jafn mikillar þolinmæði.
Þetta byggðarlag er svo lánsamt, að hing-
áð hefur valizt gott fólk til starfa við
skólann".
Um gildi náms sagði SigurbergUr, áð
ekki þyrfti að ræða, það væri öllum ljóst.
Þeir sem að byggju í Garðinum, stæðu í
mikilli þakkarskuld við þá framsýnu
menn, sem byggðu og stofnuðu skólann
og síðan hefðu margir fetað í fótspor
þeirra.
Sigurbergur H. Þorleitsson
184
F A X I