Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1972, Side 20

Faxi - 01.12.1972, Side 20
Er það ekki í raun og veru furðulegt, hve mjög við erum fyrir það að láta skemmta okkur. Við förum í kvikmynda- hús og leikhús, til að horfa á það, sem fyrir augun ber ,og í velflestum tilfellum förum við líka á dansstaði til áð sjá, fremur en táka þátt í fagnaðinum, sem við afsökum með því að við séum bara að sýna okkur og sjá aðra. En þrátt fyrir þetta eru alltaf þó nokkrir, sem gæddir eru hinum hugsunarhættinum, það er að segja, áð vilja láta glápa á sig, blessun- arlega, vil ég segja, því að hvar væri leikmennt okkar stödd, ef þessi árátta væri alls ekki fyrir hendi? Um hitt má svo deila, hverjir eigi yfirleitt að fara upp á svið, — og þarna erum við ein- mitt komin að því, sem mig langaði til að gera að umræðuefni að þessu sinni. upp þessa starfemi, eru í velflestum til- fellum svokallaðir dilettantar eða við- vaningar, sem eru mörgum þrepum neð- ar en amatörarnir, sem eiga að hafa hlot- ið einhverja þjálfun og tilsögn, sem veitir þeim rétt til áð koma fram, svo að hægt sé að gera einhverjar kröfur til þeirra. Þarna verður að gera skýr mörk. Það er engin ástæða til, og alls ekki hægt, að gera neinar kröfur til þess, sem stendur tilsagnarlaust í fyrsta sinni uppi á sviði. Ef hann stendur sig sæmilega, þá er það gott og meira en hægt var að búast við. Fari hann aftur upp á svið án þess að afla sér þekkingar, stendur hann aðeins í sömu sporum. Gagnrýni getur hann aldrei fengið, annað en hræsni. Það verð- ur hann að gera sér ljóst. Það er aðeins örfáum snillingum gefið að geta tilsagnar- Baldur Hólmgcirsson nýlega, að það væri nánast kraftaverk, ef leikrit kæmist á svið hér í Keflavík. Sá góði maður ætti bara að gefa sig fram til starfa og kynnast málinu af eigin raun. Ég er ekki viss um, nema hann ræki sig á það á leiðinni niður á Vörubílastöð — þar sem Leikfélag Keflavíkur hefur yfir- ■ LIST!! ...... - ...............- —^ leitt æft — að það eru leikhús hér á Suð- urnesjum, í næsta nágrenni okkar, rúm- góð og fín, með öllum útbúnaði til beztu leiksýninga. Og þá er ég kominn að merg málsins. Ég hef aldrei verið sáttur við sviðið í Félagsbíói, enda þótt forráðamenn húss- ins hafi allir verið af vilja gerðir til að reyna að skapa þar áðstöðu til leiiksýn- inga. Þeir verða heldur ekki sakaðir um, hvernig til hefur tekizt. Sökina er að finna hjá þeiin, sem ekki mega heyrt á það minnzt að sýna á leiksviði, en beita öllum brögðum til að hokra í algjöru að- stöðuleysi. Ég veit, að méð því að koma upp leik- húsi í Stapa, skapa samstöðu — helzt allra sveitarfélaganna á Suðurnesjum — um að koma þar upp leikhúsi á Suður- nesjamanna, er hægt að byggja upp á- hugamannaleikhús, sem veitir ánægju öllum Suðurnesjamönnum, leikhús, sem byggt er á réttan hátt, á þeirn grundvelli, sem til er ætlazt. En það þarf átak til. Það þarf stor-m — til að sópa burtu fognmollunni og 1 1 1 .........—-... — SKAMMDEGIS- ÞANKAR UM LEIK- ■ >1 -. -i — Það er leikið út um allt land, alls staðar eru starfandi leikflokkar og fé- lög, sem starfa misjafnlega kröftuglega. Er þar fyrst og fremst miðað við það, hversu mörgum verkefnum þessir aðilar skila árlega, og skiptir talsverðu máli, hvort verkefnin skiptast sæmilega milli alvöru og gázka, — því að starfsemi þessa þykir sjálfsagt að styrkja af al- mannafé, og því meir, sem starfsemin er alvarlegri. Um hitt er ekki, eða a.m.k. miklu minna spurt, hvort sýningarnar hafi haft æskilegt gildi, svo sem hvort hlegið hafi verið af hjartans innileik að gáskanum og tárazt yfir alvörunni, eða, eins og vill svo oft gerast, að hlegið sé að alvörunni og tárazt, eða hrist höfuðið yfir gásk- anum, að ekki sé meira sagt. Dæmin um hið síðarnefnda eru svo mýmörg, að manni óar við áð þurfa að rifja þau upp. Orsakanna er víða að leita, og ekki úr vegi að geta nokkurra þeirra hér. í sambandi við starfsemi leikfélag- anna úti á landsbyggðinni hendir oft, að talað sé um amatör-'mennsku, og þar með átt við áhugaleikmennsku. Hér er um að ræða ranga meðferð erlends orðs í all svakalegum stíl. Þeir, sem byggja laust, undirbúningslaust, tekið að sér hlutverk, túlkað tilfinningar á sviði, svo að vel fari. Það er blekking að halda því fram, að nám sé tilgangslaust og þarf- laust í þessari grein. Hér álít ég, að sé að finna vexsta hænginn í starfsemi leikfélaganna, sem ekki hafa þjálfuðu, skipulögðu kunn- áttuliði á að skipa. En hinu hef ég líka tekið eftir: Það er eins og kunnáttan megi ekki komast að fyrir viðvanings- hættinum. Dilettantarnir eru í eigin aug- um orðnir svo snjallir, að þeir þurfa alls ekki á slíkri forsjá að halda. í versta til- felli er fenginn leikstjórnarmenntaður maður frá Reykjavík. Honum er greitt ákveðið kaup fyrir að setja stimpil sinn á sýninguna, punktuin basta. Hans hlut- verk er ekki að segja til um persónu- sköpun, nema það sem skammur tími hans ræður við — og viðkomandi dilett- ant er móttækilegur fyrir — framsögn hefur hann engan tíma til að laga — einföldustu atriði varðandi sviðshreyf- ingar hefur hann ef til vill tækifæri til að koma áð, en það er alveg undir hælinn lagt, að það síist inn, þar sem grunvöll- inn vantar. Pennaglaður Suðurnesjamaður sagði 192 — F A X 1

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.