Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1972, Page 27

Faxi - 01.12.1972, Page 27
„ Barnafrætíslan er fyrsta sporití á menntabrautinni ” RÆÐAÓLAFS SIGURÐSSONAR, SKÓLANEFNDARFORMANNS, Á 100 ÁRA AFMÆLI SKÓLANS Við erum hér saman komin í kvöld til að minnast aldarafmælis Gerðaskóla. 7. október 1 872 var hann settur að Gerð- um í nýbyggðu skólahúsi, af sóknar- prestinum að Útskálum, séra Sigurði Sí- Olofur Sigurðsson, (ormaðu- skólanefndar Gcrðaskólo hér á landi. Það fer ekki hjá því, að á 100 ára ferli Gerðaskóla, hafa margar kynslóðir komið við sögu, bæði nemendur og kenn- arar. Hér hafa margir lagt hönd á plóg- inn til þess að inóta þennan skóla sem stofnun, allt til þessa dags. Þá eru þeir og þó nokkrir, sem hafa verið nemendur í Gerðaskóla og stigið þar sín fyrstu spor á menntabrautinni, en komið svo síðar við sögu skólans, sem kennarar, og leið- beint yngri kynslóðum og miðlað þeirn af reynslu og þekkingu. Þar má til dæmis nefna fjóra fyrrverandi skólastjóra Gerða- skóla, sem hafa skilað þar mjög góðu starfi, og sett sinn svip á skólann. Það eru þeir Einar Magnússon, sem starfaði í 44 ár við skólann og hefur því átt dijúgan þátt í að móta hann. Hann lézt 1947. Sveinbjörn Árnason, sem var í 25 ár, Sveinn Halldórsson, er starfaði í 12 ár, og Þorsteinn Gíslason, er starfaði í 7 ár við skólann. Árið 1910 er svo hafizt handa við byggingu skólahúss í Gerðalandi, á þeim stað, er skólinn stendur enn í dag. Húsið var tvær kennslustofur, gangur og lítið geymsluherbergi. 1 þessum húsakynnum tekur skólinn til starfa, 5. október 1911. Á þessum áruin kemst fastara form á barnafiæðsluna. Arið 1907 eru sett lög um fræðslu barna. Skólaskylda 10 til 14 ára. Síðan koma 1936, ný lög um fræðslu barna, skólaskylda frá 7 til 14 ára. Af þessu leiðir, að börnum fjölgar í skólan- um, og verður húsrými því brátt of lítið til þess að geta fullnægt kröfum hinna nýju fræðslulaga. Stórhugur ríkir í skólamálum Árið 1941 er svo hafizt handa við að byggja við skólann, og er byggt við aust- urgafl hans stór álma til norðurs. í þeirri byggingu var ein stór kennslustofa, gang- ur, lúmgóður leikfimissalur, búningsher- bergi, snyrtiherbergi og íbúð á efri hæð. Þá var handavinnustofa í risi. Með til- komu þessa húsnæðis gjörbreyttust allar aðstæður við skólahaldið. Það má segja, að það hafi verið stórátak á þeirn tíma, að koma þessari byggingu upp, og er leikfimisalurinn gleggsta dæmið um þann stórhug, sem ríkti hér í skólamálum á • þeim árum, því þetta mun vera fyrsti leikfimisalur, sem byggður er hér á Suð- urnesjum. Þessi bygging var tekin í notk- un 1943. Nú kernur unglingafræðslan til sög- unnar, skyldunámið er lengt um tvö ár, enn fjölgar í skólanum, og húsrýmið veiður brátt of lítið. Árið 1966 er svo hafizt handa um aðra viðbyggingu, og er nú byggt við vesturgafl gamla skólans, sú bygging var tekin í notkun 1969. í þeirri byggingu eru þrjár rúmgóðar kennslustofur, stór og rúmgóð handa- vinnustofa fyrir drengi, gangur, snyrti- herbergi, skólastjóraskrifstofa og geymsl- ur. Það má því segja, að húsnæði það, sem Gerðaskóli býr við í dag, sé mjög F A X 1 — 199 vertsen, en hann var aðalhvatamaður að stofnun hans. Ég ætla ekki að fara að rekja sögu skólans að neinu ráði, því það verður gert af öðrum hér á eítir. Til þessa skóla er stofnáð af áhuga og fórn- fýsi nokkurra manna, sem vildu leitast við að gefa ungum samborgurum sínum kost á aukinni fræðslu, sem á þeim tíma var ekki almenningseign, ag engin fræðslulög til, eins og síðar varð. En það má segja, að barnafræðslan sé fyrsta sporið á menntabrautinni, og er því mik- ils um vert að vel takist til, því lengi býr að fyrstu gerð. Eitt hundrað ár er bæði langur og skammur tími, allt eftir því, hvað miðað er við. Ef við til dæmis beium saman við mannsævina, er þetta mjög langur tími, því það heyrir til undantekninga, að maðurinn nái 100 ára aldri. En ef við höfum sögu þjóðanna til hliðsjónar, þá er þetta stuttur tími. Til dæmis eru nú tíu hundruð níutíu og átta ár síðan ís- land byggðist, því árið 1974 er ætlunin að núnnast ellefu hundruð ára byggðar Skóli ó faraldsfæti Á hundrað ára starfstíma hafa húsa- kynni skólans að sjálfsögðu breytzt mik- ið, og einnig starfshættir. Fyista skóla- húsið er byggt árið 1871 í Gerðum. Það hús var byggt af vanefnum, en af fórnfús- um höndum, sem hjálpuðust að, til að koma upp nothæfu húsi til þess-að.barna- fræðsla gæti hafizt hér í raun. Þetta mun vera fyrsta skólahús, sem byggt er á Suð- urnesjum. Þetta hús reyndist ekki alls kostar vel, og var hætt að nota það til skólahalds árið 1887. Síðar var þetta hús notað sem samkomuhús um áraraðir. kannast víst flestir við það sem gamla „templarann“, og stendur það enn, en að sjálfsögðu mikið breytt frá sinni upp- iunalegu mynd. Frá 1887 til 1911 er svo skólinn til húsa að Útskálum, og var þar byggt tiinburhús yfir hann, og stóð það yzt á Útskálahólnum. Hef ég heyrt að það hús hafi síðar verið flutt inn að Gerðum, og • verið notað sem íbúðarhús í rúm 30 ár.

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.