Faxi - 01.12.1972, Síða 29
fróðlegt að kynnast málefnum skólans.
Það hefur vart farið framhjá neinum, að
á undanförnum árum hefur oft gengið
mjög erfiðlega að ráða kennara til starfa
við skólana úti á landsbyggðinni, og
þykir möigum furðulegt, á sama tíma
sem útskrifuðum kennurum frá Kennara-
skólanum hefur fjölgað verulega.
En ef við lítum til baka, þá er alveg
óhætt að segja það, að við höfum verið
mjög heppin í þeim málum ,því okkur
hefur haldizt vel á kennurum, og höfum
aldrei þurft áð auglýsa nema eina kenn-
arastöðu í einu. Þá höfum einnig átt því
láni að fagna, að geta leitað til manna
hér í byggðarlaginu, sem þá hafa hlaup-
ið undir bagga, og tekið að sér stunda-
kennslu, bæði um skemmri og lengri
tíma. Til dæmis núverandi sóknarprest-
ur á Útskálum, séra Guðmundur Guð-
mundsson, hann kenndi við skólann í 12
ár. Útskálaprestar hafa mjög komið við
sögu skólans frá upphafi, og átt stóran
þátt í mótun hans.
Að skólinn megi halda ófram
að gegna hlutverki sínu
Ég ætla ekki að fara að telja upp fleiri
nöfn þó af nógu sé að taka. Það yrði of
langt mál, en ég vil færa öllu því fólki,
bæði lífs og liðnu, sem starfað hafa við
skólann frá upphafi til þessa dags, þeim
sem eru hér í kvöld og eins hinum, sem
fjarri eru, öllum sem á einhvern hátt hafa
koinið við sögu hans, hvort heldur er
með kennslu eða á annan hátt unnið að
framgangi og velferð skólans, öllu þessu
fólki vil ég færa þakkir skólanefndarinn-
ar fyrir vel unnin störf.
Skóli, sem á að vera lifandi í starfi,
verður alltaf í mótun, hann verður að
vera opinn fyrir öllum nýjungum í
kennsluháttum, til að fylgjast með kröf-
um tímans, þá veiða alltaf einhver verk-
efni sem krefjast úrlausnar. Til þess að
bæta aðstöðu nemenda til útileikja, er
brýnt verkefni nú að taka skólalóðina til
lagfæringar. Hana þarf áð skipuleggja og
gera varanlega leikvelli fyrir nemendur
með tilheyrandi leiktækjuin. Það er von
skólanefndarinnar, að þessu verkefni
verði hrundið í framkvæmd á næsta ári.
Þá er nauðsynlegt að fara að undirbúa
stækkun leikfimissalarins, því hann er
orðinn of lítill og uppfyllir ekki þær
kröfur, sem gerðar eru til slíkra sala nú,
þó hann hafi verið stórt og myndarlegt
átak á sínuni tíma, fyrir 30 árum.
Talað hefur verið um að byggja sund-
laug við skólann. Það væri því ekki úr
vegi að gera athugun á því, hvort ekki
væri hagkvæmast að framkvæma hvort
tveggja í einu, upp á þáð að nýta bún-
ingsherbergin fyrir bæði sal og sundlaug.
Þetta eru verðug verkefni sem krefjast
úrlausna á næstunni.
Að endingu vil ég svo færa skólanum
hamingjuóskir skólanefndai á hundrað
ára afmælinu, og það er von okkar, að
hann muni halda áfram að gegna sínu
mikilvæga hlutverki, sem er að styðja
og leiðbeina þeim ungu, er þeir stíga sín
fyrstu spor inn á menntabrautina, að
hann megi eflast og mótast þannig, að
hann geti jafnan fullnægt þeim kröfum,
sem gerðar verða til hans á hverjum
tírna. Að hann geti lagað sig að breytt-
um kennsluháttum, svo hann verði fær
um að útskrifa sína nemendui siðprúða
og vel undirbúna, hvort heldur verður
til að takast á við fekara nám, eða að
þeir leggja út í lífsbaráttuna sjálfa. Það
er ósk okkar, að svo megi verða næstu
hundrað árin.
>
VERKALÝÐS- OG SJÓMANNAFÉLAG KEFLAVÍKUR
AUGLÝSIR:
Skrifstofa félagsins er að Faxabraut 2, Keflavík,
sími 2085.
Skrifstofan er opin klukkan 6—7,30 e.h. virka daga
nema laugardaga.
VERKALÝÐS- OG SJÓMANNAFÉLAG KEFLAVÍKUR
F AX I — 201