Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1972, Síða 33

Faxi - 01.12.1972, Síða 33
„Ástæðan til þess var sú, að í mínum augum voru þessar þjóðir afskekktar, en mjög sjálfstæðar. í fyllingu tímans hleypti ég svo heimadraganum, allsendis óragur við að geta ekki kynnzt fólkinu í við- komandi landi, því ég hef ihvergi átt erf- itt með að falla inn í hópinn.“ íslenzka veðráttan fellur útlendingum mismunandi í geð, og margir hafa haft orð á rigningu, snjó og kulda, og ekki má gleyma blessuðum næðingnum. Mér verður einmitt litið út um gluggann, og sé farið er að snjóa, svo ég spyr Mars- hall, hvemig honum líki veðurfarið. ,,Ég Kann vel við það. Þar sem ég er fæddur og uppalinn, gerir meira frost cn hérna, og þar kyngir niður langtum meiri snjó. t bernsku man ég eftir, að við byggðum tveggja hæða snjóhús í sköfl- unum. En hérna sér varla snjó allt árið“. Marshall talar það góða íslenzku, að ætla má að hann hafi numið hana á sama máta og innfæddir, — og það gerði hann raunar, ekki sem barn, heldur sem fullorðinn maður — af vörum fólks. „í sjálfu sér var ekki neinum vand- kvæðum bundið að læra orðin, ég spurði hváð hitt og þetta héti á íslenzku og lagði það vel á minnið. Þegar ég hafði aflað mér dálítils orðaforða og fór í verzlan- ir eða annað, til að spyrja um verð og fleira til að fá æfingu að tala, greindu menn strax á mæli mínu að ég var út- lendingur, og ávörpuðu mig á ensku. En með þrákelkni fór mér smám saman fram og get núna gert mig skiljanlegan á talmáli, en ég les íslenzkuna vanda- lítið“. Ása, kona Marshalls, kemur, ásamt dóttur þeirra, sem lalar jöfnum höndum bæði málin, að því er Ása segir mér, og þá gellur í Marshall: „Já, en at- hugaðu, tvíburarnir, Tryggvi og Paul, þeir tala hvorugir ensku, íslenzkan er henni yfirsterkari. Þetta segir sína sögu, Þrátt fyrir nærveru enskumælandi manna, held ég að ekki þurfi að óttast að ís- lenzkan máist út‘.. Jörð er orðin alhvít úti og jólalegt um að litast og krakkarnir vonast til að eins verði á jólunum. Berst þá talið að því, hvernig Marshall kunni við íslenzka siði og háttu. — Ef við tölum um jólin, þá skynj- aði ég ekki hátíðleika þeirra, fyrr en ég tók þátt í íslenzku jólahaldi. Ég vissi allt- af, að eitthvað vantaði í jólin heima í Ameríku, en ég skynjaði ekki hvað. Maður vissi varla hvaða dagur var. Inni- leikinn, fegurðin, hátíðarandinn, gleðin, ég get varla orðað allt, sem óg finn í jólunum ykkar, gagntekur mig. Ég fann þetta ekki strax. . . . “ En nú grípur Ása frarn í fyrir honum: „Ég þurfti fyrstu jólin að biðja hann um að fara í dökk föt og hvíta skyrtu, en nú þarf ekki lengur að minna ihann á klæðnaðinn. Honum finnst hann ómiss- andi við jólaihaldið. „Eins og hangikjötið“, segir maður hennar og kímir. Tvíburarnir hafa af og til fylgzt með samræðunum, og ja, ég vissi ekki hvor, settist hjá mér, smeygði litlum handlegg undir olnboga minn og sagðist vilja vera vinur minn. Væru allir jafn vinalegir og þessi ungi maður, þyrfti ekki áð óttast stríð. Marshall lcs mikið íslenzkar bókmenntir „Eitt er það í fari íslendinga, sem mér finnst skemmtilegt, en hefur valdið mörgum útlendingi furðu. íslendingar geta deilt um málefni af miklum móð, og verið beztu vinir á eftir. í fyrstu þótti mér þetta kyndugt, enda hafði ég frern- ur vanizt iþví, að menn reyndu fyrst að komast að því ,hváða skoðun viðinæl- andinn hefði, og síðan voru þeir sam- mála. Deilur hefðu endað með leiðind- um“. Nú bregðum við okkur dálítið aftur í tímann. Eftir íslandsdvölina liggur leið Marshalls í herþjónustu. Hann hafði að vísu hugsað sér að spreyta sig í vcrkfræði- námi, en að athuguðu rnáli féll hann frá þeirri ákvörðun. Fyrstu ár hermennsk- unnar dvaidi hann í Austin í Texas á- samt fjölskyldunni ,sem þá stækkaði um tvo, þegar Palli og Tryggvi fæddust. „Þeir eru eiginlega Þingeyingár", segir faðir þeirra og lilær við. „Einhvern tíma heyrði ég að Texasbúum og Þingeyingum svipaði svolítið saman“. Þótt dvölin í Austin væri að möigu leyti ánægjuleg, langaði þau hjónin ávallt til gamla Fróns. Marshall skrifaði til Herráðsins og sótti um dvöl á ísalndi. Einnig spurðist hann fyrir um hvað marg- ir varnarliðsmenn töluðu íslenzku þar. „Töluna man ég ekki, og hef kannski ekki gefið mér tínra til að lesa, því í bréf- inu stóð „í septeinber, góða ferð til ís- lands“. Ég tókst á loft og heppilegt var fyrir höfuðið að ég var staddur undir berum himni, þegar ég las svarbréfið. Við Texas má ég ekki skilja svo, að segja þér ekki söguna um græna slökkviliðsbílinn. Eitt sinn þegar Lyndon Johnson var væntanlegur til Austin, var kona hans spurð að því, hvernig slökkviliðsbíl hún vildi hafa á flugvellinum. Grænan, svar- aði Lady Bird. Þetta olli miklu fjaðra- foki hjá slökkviliðinu. Allir bílar voru rauðir, svo einn var málaður grænn í skndi og látinn standa við flugbrautina til að þóknast forsetafrúnni. Síðan vita allir borgarbúar hvenær foisetinn er væntanlegur til Austin. Græni bíllinn sér um það“. Allmargir eru þeir, sem búa í frarn- andi landi einungis til að þóknast maka sínum, og ég drep á það atriði við Mars- hall. — Ég vil hvergi frekar búa en hér á landi. Viðbrigðin voru cngin fyrir mig að koma hingað, nerna til hins betra. Enginn íslendingur myndi vilja búa í þeim húsum, sem stór hluti íbúanna býr í, í heimaborg minni. Aðeins hinir fáu ríku búa í allt að því höllum. Slíkt sýnir hvað stéttaskiptingin er mikil. Hér er hún ekki til. Og veiztu það, að Reykjavík var stærsta borgin, sem ég hafði dvalið í, þegar ég kom þangað, og ef við t.d. berurn hana saman við Austin, sem ég seinna dvaldi í, og er mun stærri en Reykjavík, þá get ég ekki líkt því saman hvað menningin er meiri í Reykjavík, á öllum sviðum, leikhús, söfn, myndlist, tónlist, bókmenntir og allt til heims- meistaraeinvígis. Á móti öllu þessu er Austin dauð borg“. Herþjónustureglur mæla svo fyrir, að inenn skipti um stað á fárra ára fresti. Eftir hámarksframlengingu verður Mars- hall að hverfa héðan af landi brott snenima árs 1975. „Ég er ekki búinn að fá endanlegt svar um lokaframlengingu, en ég vona hið bezta. Okkur væri mikil vonbrigði ef F A X 1 — 205
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.