Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1972, Page 46

Faxi - 01.12.1972, Page 46
w / ''ayc fuýurjxzó t/enf.... Langt úti í hafi er lítil skógi vaxin eyja — og langt inni í skóginum er líti'ð og skrýtið hús. Sumir halda að það sé á- byggilega ekkert hús þarna, en það er það nú samt, og þar búa meira að segja sex litlir dvergar. Þeir eru orðnir ósköp gamlir og hrumir og heita Júmbó, Dúm- bó, Mambó, Zambó, Nixon og Gvendur. En þótt dvergarnir séu nú orðnir gaml- ir og hrumir, voru þeir ungir og fjörugir einu sinni. Þá áttu þeir heima í allt öðru landi, unnu í gimsteinanámu og björguðu meira að segja fagurri kóngsdóttur, sem hét Margrét, Mónalísa eða Mjallhvít — eða eitthvað svoleiðis, frá ægilega grimmri kerlingu, sem var svo stórskrýtin, að hún talaði við spegilinn sinn í ein- rúmi.... Þá voru þeir líka sjö talsins, en sá sjöundi, sem hét Snati, hafði dáið úr kransæðlastíflu, þegar hann var austur í Indónesíu eitt sinn í viðskiptaerindum — en það er nú reyndar allt saman önn- ur saga. Nú voru þeir sem sagt orðnir gamlir og gátu ekkert unnið, nema að prjóna vettlinga — og svo voru jólin að koma. — Jamm, nú fara blessúð jólin að koma, sagði Mambó dag nokkurn, — og við erum ekki farnir að selja einn einasta vettling. — O, taktu þessu nú rólega, sagði Gvendur bróðir hans. — Það eru rúmir fjórir mánuðir til jóla ennþá — og ef við geturn ekki selt vettlingana, þá getum við bara gefið þá í jólagjöf. — En þetta eru sjötíu þúsund vettl- ingar. Hverjum eigum við að gefa þá? spurði 'Mambó og byrjaði á nýjum vettl- ingi. Umsjón: Þorstcinn Eggertsson ★ Það var komið fram í miðjan desem- ber og skógurinn, sem dvergarnir sex áttu heima í, var allur snævi þakinn. Dverg- arnir höfðu fengið laghentan trésmið til að stækka húsið þeirra, því að nú kom- ust þeir varla fyrir inni í því — fyrir vettlingum — og einstaka sinnum sást til manna, sem voru að höggva sér jóla- tré í skóginum. Þá var það dag nokkrun, að stórum, gullbúnum skrautvagni með átta hvítum hestum fyrir, -var-ekið upp að dvergahús- inu og roskin kona steig út úr vagninum. — Er það ekki hérna, sem dvergarnir sjö eiga heima? spurði hún trésmiðinn og dæsti, því að hún var bæði gildvaxin og þreytt eftir langt ferðalag. — Jú — það stemmir, þó að ekki séu þeir sjö lengur, anzaði trésmiðurinn og fékk sér í nefið. Svo hnerraði hann svo hraustlega, að stórt jólatré, sem stóð við hliðina á honum, hristist og skalf og all- ur snjórinn af því hrundi ofan á hann og kaffærði hann. Hann ætlaði hér um bil að drepast úr hræðslu — en tókst þó að grafa sig úr snjóhrúgunni í tæka tíð. — Ajfsakið, sagði virðulega konan, sem hafði beðið róleg meðan veslings trésmiðurinn hafði lent í öllum ósköpun- um, — en haldið þér að þeir séu heima núna? — Já, áreiðanlega, sagði trésmiðurinn og fór að leita að fölsku tönnunum sín- um, sem ihann hafði tapað í snjónum. Konan gekk inn í húsið — og jafo- 218 — FAX DVERGARNIR SEX OG DROTTNINGIN

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.