Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1972, Page 68

Faxi - 01.12.1972, Page 68
SKÚLI MAGNÚSSON: DRÖG AÐ SÖGU KEFLAVÍKUR Fimmtíu au. fyrir hvern fund kvenfél. „Sameindarinnar" - „Skothúsið" - fyrsta samkomuhúsið í jólablaði Faxa 1969 í grein um stúkurnar, getur Guðni Magnússon um eftirfarandi: „2. júní 1895. Guðm. Hannesson skýrði frá því að kvenfélags- stjórnin hefði beðið um húsið (þ.e. góð- templarahúsið) til fundahalda í sumar. Samþ. að lána það fyrir ekki neitt“. Þetta er glefsa úr fundargeið st. Vonar- innar nr. 15. Er þetta elzta heimild, sem mér er kunnug um samtök kvenna hér suður með sjó. Ekkert meira er fyrir hendi um starf g viðgang þessa félags. Dettur mér helzt í hug áð hér gæti félags- andans frá Þórði lækni Thoroddsen, þó hann hins vegar starfi ekki innan kven- félags. Sennilega hefur það verið kona hans, frú Anna, sem hefur staðið fram- arlega í röðum félagskvenna. Það er ekki fyrr en nokkru eftir 1900, sem heimildir eru næst til um kvenfélag. Kvenfélagið „Samheldnin“ starfaði hér 1908. Þann 13. desember fer stjórn „Sam- heldninnar“ (mér er ekki kunnugt hvaða konur voru þar) fram á við skólanefnd, áð hún láni sér herbergi til fundahalda í skólanum við Íshússtíg 3, tvisvar í mán- uði. Samþykkti nefndin það fyrir sitt leyti, að konurnar fengju inni þar með starfsemi sína. Málinu var þó vísað til hreppsnefndarinnar til frekari umsagnar. 1 svarbréfi sínu til stjórnar félagsins segir Þorsteinn oddviti Þorsteinsson m.a.: „Ég þykist vita að félag þetta muni vera fátækt og eigi megnugt til að standast þessi útgjöld, en þar sem húsið (skólinn) er eign fátæks hrepps og mér í öðru lagi ókunnugt um markmið þessa félags, þá leyfi ég mér, f.h. hreppsnefndarinnar, að ákvéða að félagið borgi 50 aura fyrir hvern fund, sem þáð hefur haldið og heldur til næstu fardaga, sem greiðist í lok þess tímabils“. Oddviti virðist þekkja lítið til „Sam- heldninnar“, eins og glöggt kemur fram í því, að honum er allsendis ókunnugt um markmið félagsins. Þá kemur einnig til féleysi. Benda þessi ummæli ótvírætt til þess að félagið hefur verið búið að starfa stutt. Má því telja að það hafi Þorgeir Pólsson verið jafnvel stofnað á þessu ári, 1908. En hversu lengi félagið hefur starfað veit ég ekki, og eftir þetta sjásl þess eng- in merki af hreppsbókum að greidd hafi verið húsaleiga. Árið 1917 hefur kvenfélagið „Freyj- an“ litið dagsins ljós. Félagið borgar 4 krónur fyrir barnaskólann það ár. Einnig fardagaárið 1921-1922. Þá greiðir félag- ið 30 kónur í leigu. Árið 1925 er „Freyjan“ enn starfandi, en þá sendi félagið áskorun til hrepps- nefndar um að raflýsa götur kauptúns- ins. Mun ég ræða það frekar seinna í greinum þessum, er kemur að upphafs- ári rafmagns í Keflavík. Árið 1938 er félagið hætt störfum fyrir nokkrum árum. Eru þá Ungmennafélagi Keflavíkur afhentar 2000,00 kr., sem safnað hafði verið í þeim tilgangi „að efla menningu og heilbrigði“ í Keflavík. Var það ósk nokkurra félagskvenna, að þessi upphæð rynni til sundhallarinnar og barnaleikvallar. Um upphaf kvenfélags þessa hef ég engar heimildir fundið. En heyrt hef ég, að með tilkomu kirkjunnar 1914 hafi risið upp kvenfélag. En hvort það er „Freyjan“ eða ekki, skal ósagt látið á meðan upplýsingar eru ekki fullnægj- andi. Seinna var gerð tilraun til að stofna kvenfélag, líklega um 1942, en það tókst ekki. Kvenfélag Keflavíkur er því fjórða sinnar tegundar er hér starfar. Skemmtanalífið á þessum árum var hvorki mikið né fjölbrevtt. Haldin voru böll á vertíðuin, tombólur, leiksýningar og söngskemmtanir. Áttu Reglumenn einna mestan þátt í skemmtanalífinu enn sem fyrr. Strax 1886 hófu þeir að æfa söng af krafti og gerðu það oft síðan. Aldamótaárið 1900 er hér búsettur í gamla skólanum Þorgeir Pálsson, organ- leikari við Útskálakirkju. Var hann þá nýkvæntur Kristínu Magnúsdóttur, sem áður hafði átt Magnús Zakaríasson, bók- haldara hjá Duus. Kristín var fædd 1868 á Vatnsnesi. Alsystur hennar voru þær Helga og Elín Thomsen, er urðu báðar eiginkonur Péturs Thomsen, bókhaldara og afgreiðslumanns við félagsverzlun Eggerts Gunnarssonar 1880-1883. Marta Hjónin Kristin Magnúsdóttir og Magnús Zakariasson 240 — F A X I

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.