Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1972, Side 70

Faxi - 01.12.1972, Side 70
Jón Olafsson Fyrsti símstöðvarstjóri í Kcflavík og jafnframt á Suðurnesjum, var frú Marta heitin Jónsdóttir, sem seinna lagði mikið af mörkum í blaðið hér um Keflvíkinga aldamótanna. Má segja að þar sé sá grunnur, sem greinar þessar eru byggðar á að mörgu leyti. Sérstaklega hvað alla persónusögu snertir. Við stöðina var Marta til ársins 1912, er hún sagði starfinu lausu frá 1. júlí það ár. Hefur það átt sinn þátt í því, að hún fékk ekki þá kauphækkun, sem hún haíði þegar farið fram á, árið eftir að hún tók við starfinu. Hreppsnefndin þverskallaðist alltaf við bréfum hennar. Eftir Mörtu sóttu 4 um stöðuna, þar af einn karlmaður, sjálfur Carl Möiler. Hlaut hann stöðuna til næstu 5 ára að telja. Síðan var það framlengt. Ég gat áðan um að símstöðin hef'ði verið sett upp á heimili Möllers, við Kirkjuveg 36. Það hús byggði upphaflega Guðmundur Jakobsson, byggingameist- ari. Fluttist hann til Reykjavíkur 1898 en seldi Möller þá húsið. Bjó Möller áð- ur í húsi nokkru, sem stóð fyrir vestan bragga h.f. Keflavíkur, þ.e. þar sem hin nýja útbygging er til austurs úr sjálfu frystihúsinu. Hafði Möller komið hingað til Keflavíkur um 1882 og gerzt beykir hjá Duus. Fljótlega varð hann þó innan- búðarmaður, við afgreiðslu. Hann var fæddur í Vestmannaeyjum 1859 og dó hér í Keflavík 1937. Konu sinni, Val- dísi Magnúsdóttur, hafði hann kynnzt um svipað leyti og hann kom hingað, því hún kemur alveg sama ár, 1882, og Marta V. Jónsdóttir verður þjónustustúlka hjá Duus. Taldi hún seinna meir, áð það hefði verið sér góður skóli. Valdís var að ætt að austan og kom hingað frá Ægissíðu í Holtum. Hún var fædd 1855 og dó sem maður hennar, hér í Keflavík 1939. (í janúar- blaði Faxa 1961 segir Marta Jónsdóttir gjörla frá heimili og ætt þeirra Möller- hjóna). \ OSKUM VfÐSKÍPTAMÓNNUM OG STARFSMÖNNUM Cjlebilecjra jóla OtJ farsœls hornandi árs! ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN Á LIÐNU ÁRI. Netaverkstœði Suðurnesja 242 — F A X I

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.