Faxi - 01.12.1972, Blaðsíða 70
Jón Olafsson
Fyrsti símstöðvarstjóri í Kcflavík og
jafnframt á Suðurnesjum, var frú Marta
heitin Jónsdóttir, sem seinna lagði mikið
af mörkum í blaðið hér um Keflvíkinga
aldamótanna. Má segja að þar sé sá
grunnur, sem greinar þessar eru byggðar
á að mörgu leyti. Sérstaklega hvað alla
persónusögu snertir.
Við stöðina var Marta til ársins 1912,
er hún sagði starfinu lausu frá 1. júlí
það ár. Hefur það átt sinn þátt í því, að
hún fékk ekki þá kauphækkun, sem hún
haíði þegar farið fram á, árið eftir að
hún tók við starfinu. Hreppsnefndin
þverskallaðist alltaf við bréfum hennar.
Eftir Mörtu sóttu 4 um stöðuna, þar af
einn karlmaður, sjálfur Carl Möiler.
Hlaut hann stöðuna til næstu 5 ára að
telja. Síðan var það framlengt.
Ég gat áðan um að símstöðin hef'ði
verið sett upp á heimili Möllers, við
Kirkjuveg 36. Það hús byggði upphaflega
Guðmundur Jakobsson, byggingameist-
ari. Fluttist hann til Reykjavíkur 1898
en seldi Möller þá húsið. Bjó Möller áð-
ur í húsi nokkru, sem stóð fyrir vestan
bragga h.f. Keflavíkur, þ.e. þar sem hin
nýja útbygging er til austurs úr sjálfu
frystihúsinu. Hafði Möller komið hingað
til Keflavíkur um 1882 og gerzt beykir
hjá Duus. Fljótlega varð hann þó innan-
búðarmaður, við afgreiðslu. Hann var
fæddur í Vestmannaeyjum 1859 og dó
hér í Keflavík 1937. Konu sinni, Val-
dísi Magnúsdóttur, hafði hann kynnzt
um svipað leyti og hann kom hingað, því
hún kemur alveg sama ár, 1882, og
Marta V. Jónsdóttir
verður þjónustustúlka hjá Duus. Taldi
hún seinna meir, áð það hefði verið sér
góður skóli. Valdís var að ætt að austan
og kom hingað frá Ægissíðu í Holtum.
Hún var fædd 1855 og dó sem maður
hennar, hér í Keflavík 1939. (í janúar-
blaði Faxa 1961 segir Marta Jónsdóttir
gjörla frá heimili og ætt þeirra Möller-
hjóna).
\ OSKUM VfÐSKÍPTAMÓNNUM OG STARFSMÖNNUM
Cjlebilecjra jóla
OtJ farsœls hornandi árs!
ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN Á LIÐNU ÁRI.
Netaverkstœði Suðurnesja
242 — F A X I