Faxi - 01.12.1972, Síða 82
-Í0&Z.
Reyndu sjálfur
-0^
Siggi: Hvers vegna eru mennirnir
beztir á jólunum, en byrja svo aftur
að jagast og tala illa hver um annan
strax eftir jólin?
Afi: Það skal ég segja þér, drengur
minn. Það er af því, að þeir hafa að-
eins lært af bókum kenningar Krists,
en sjaldan gert nokkra tilraun til að
lifa eftir þeim.
Siggi: Hvernig er þá hægt að lifa
eftir þeim?
Afi: Það er aðeins ein leið í því
efni. Það er með ströngum sjálfsaga
að leitast við að bæta lyndiseinkunn
sína, en fást ekkert um hégómlegar,
alvörulausar varajátningar. En það er
ekki von að þú skiljir það, drengur
minn.
Siggi: Jú, útskýrðu það fyrir mér,
afi minn.
Afi: Hugsaðu þér nú, að þú viljir
temja þér þolinmæði og umburðar-
lyndi við aðra. Þá er ekki nóg að lesa
um að, að Jesús hafi haft þessar
dyggðir til að bera. Þú verður sjálfur
að læra að eignast þær. Þú verður
sjálfur að sýna það í lífinu, að þú sért
þolinmóður og umburðarlyndur, og
hvorki jagist né reiðist, þó að einhver
geri þér á móti skapi.
Siggi: Er þá ekki nóg að fara með
bænirnar sínar?
Afi: Nei, ekki nóg. En það er byrj-
unin, ef það er gert af heilum hug.
Þú þarft líka að setja þér það mark,
að eignast sjálfur eitthvað af jólaboð-
skapnum, svo að það hafi bætandi á-
hrif á sambúð þína við aðra. Það gef-
ur þér um leið aukinn, andlegan
þroska.
Siggi: En hvernig á ég að fara að
þvi að reiðast ekki við hina krakkana?
Afi: Það er erfitt í fyrstu. En reyndu
alltaf að hugsa þig vel um og reyndu
að líta á málið frá þeirra sjónarmiði.
En reiðin er löstur, sem hægt er að
uppræta.
Siggi: Eru það margir, sem reyna
þetta?
Afi: Alltof fáir í fullri alvöru. Flest-
ir láta sér nægja játningu varanna,
það er svo miklu léttara.
Siggi: En jólin eru þó alltaf dásam-
leg?
Afi: Já, þau eru það. Og þó væru
þau enn dásamlegri, ef þau væru allt
árið. Og það gætu þau verið, ef menn-
irnir reyndu að læra meira af jóla-
boðskapnum en þeir gera.
E. S.
KROSSGÁTA NR. 3
l a 3 5"
6 ■■■
7 8
9 /0 - -
// n
/3 M f/ /4* fS
/6 'Á ' mm 17
Lárétt: 1. Ránfugl. 6. Maður í Nýja-
Testamentinu. 7. Skammstöfun. 8.
Atviksorð. 9. Skyldmenni. 11. Handa-
vinna. 13. Haf. 14. Taka á. 16. Fisk-
ur. 17. Sögn
Lóðrétt: 1. Fallegt. 2. Tveir samhljóð-
ar. 3. Afkvæmi íslenzks húsdýrs. 4. Á
fætinum. 5. Gott á bragðið. 9. Tveir
eins. 10. Samhljóði og sérhljóði. 11.
Líður vel. 12. Keyra. 13. Dreifa. 15.
Á bát.
254 — F A X I