Faxi - 01.12.1982, Side 17
Andi Nostradamusar eftir Þorstein Eggertsson
Nostradamus sá 30 aldir fram itímann. Hann sagði að ófriðlegt yrði til ársins 1999 en síðan eilífur friður.
gamlir en eru samt enn aö nætast, eins og t.d.
vitranir Amosar og Esekiels.
Spámenn nútimans eru líklega ekki eins vel
að sér I faginu og fyrirrennarar þeirra voru fyrr
á öldum, en vísindamenn, félagsfræðingar og
aðrir spekingar hafa spreytt sig á gerð vest-
rænnar heimsmyndar eins og hún gæti litið út
um næstu aldarmót.
Samkvæmt þessum áætlunum verður vinnu-
dagur fólks orðinn helmingi styttri en hann eri
dag (5 stundirá dag, 4 dag aí viku og þaðan af
minna), meðalaldur fólks á Norðurlöndum
verður kominn upp í 95 ár og í hverjum kaup-
stað landsins verða a.m.k. 2-3 íbúar sem hafa
náð 100 ára aldri eða meira. Samkvæmt
þessu ætti nokkuð margt fólk sem nú er orðið
áttrætt að geta lifað góðu lífi til næstu alda-
móta. Peningar verða ekki lengur notaðir i nú-
verandi mynd, heldur nafnskírteini með nafn-
númeri, fingraförum og eiginhandaráritun við-
komandi aðila. Skírteinið verður notað sem
gjaldmiðill, líkt og kreditkort, og verður hægt
að borga allt frá strætisvagnafargjöldum og
upp i heil íbúðarhús með þeim. Þegar borgað
er með þeim eru þau lögð á þar til gerðar
Ijósplötur sem senda tiltekinni móðurtölvu
upplýsingar um greiðslu. Sé nægileg inni-
stæða ekki fyrir hendi kviknar bara rautt Ijós á
plötunni og ekkert verður úrviðskiptum.
Þá fá menn líka laun sín greidd daglega.
Þegar þeir stimpla sig út, að loknum vinnu-
degi, sendir stimpilklukkan umsvifalaust upp-
lýsingar um launin til móðurtölvunnar.
Þaldég. = Það held ég.
Og síminn... Hann verður kominn I alheims-
kerfi gegn um gerfihnattasamband og þá
verða engir tveir símnotendur iheiminum með
sama símanúmer. Að vísu verða númerin löng
— 10 eða 11 tölustafir, en þar sem hver tala
hefur ákveðinn tón, myndar allt númerið
ákveðna laglínu sem auðveldlega má læra.
Þvímiður getur ekki nema einn maður iheim-
inum haft simanúmerið bíbbgblaka-álftirnar-
kvaka, en möguleikarnir eru ótæmandi. Þá
verða símaviðtækin þráðlaus og menn geta
tekið þau með sér hvert sem þeim sýnist. Til
Norðurpólsins ef þeim dettur I hug — og alltaf
er hægt að hringja íþá.
Þá munu menn geta valið um nokkra tugi
sjónvarpsstöðva á sjónvarpstækjum sinum,
sem verða væntalega á stæró við heilan stofu-
vegg — og það má láta tækið hverfa ofan í
gólfið með þvíað ýta á hnapp, nema það verði
orðið gamaldags að horfa á venjulegt litsjón-
varp eins og menn þekkja þau i dag. Alvarpið
verður nefnilega komið inn á annað hvert
heimili um næstu aldamót. Það er þannig úr
garði gert að helstþarfað hafa prívat herbergi
fyrir það, vegna þess að áhorfandinn verður
sjálfur staddur inni í myndinni sem sprettur
upp úr gólfinu þegar kveikt er á tækinu. Leikar-
arnir líta út eins og alvöru fólk i alvöru leik-
mynd. Þú getur spássérað í kringum þá og
skoðað frá öllum hliðum. Efþú ert t.d. að horfa
á bandarískan vestra og ertstaddur inn á krá
(mitt á milli lögregluforingjans og bankaræn-
ingjans) þarftu ekkert að vikja þér undan þótt
skúrkurinn ætli að gefa löggunni á hann. Leik-
ararnir eru nefnilega eins og vofur; þú getur
labbað i gegn um þá og þeir geta labbað i
gegn um þig.
En nú er best aó ég hætti þessum vangavelt-
um áður en þær fara að verða of flóknar.
Snúum okkur að aðfangadagskvöldi árið
2001.
Við erum stödd íhúsi einhvers staðar á Suð-
urnesjum. Þetta er ekki mjög gamalt hús — /
hæsta lagi 20 ára, byggt I kringum 1980, en
samt eru komnar ýmsar viðbyggingar á það
s.s. útihús fyrir tölvustjórnstöð í sambandi við
dagblöð, póst, fjármál, heilbrigðisþjónustu og
aðra hversdagslega hluti.
Þér, sem gesti aftan úr árinu 1982, finnst
margt ef ekki flest af þvi sem þú sérð mjög
framandi og botnar ekkert í sumu. Þú verður
þvi ekki lítið undrandi þegar klukkan slær 6
(um leið og hún opnar stofuhurðina og breytir
lýsingunni til að auka á jólastemmninguna). Þú
verður ekkert endilega hissa á hæfileikum
klukkunnar til þjónustustarfa— heldurþví sem
þú sérð istássstofunni. Þar sérðu jólahald sem
er meira gamaldags en þú áttir að venjast um
árið 1980. Það er hangikjöt og jólagrautur á
borðum, jólasálmar heyrast úr ósviknu út-
varpstæki í einu horninu, pökkum er raðað
kringum snoturt grenitré með tendruðum vax-
kertum — og jólaskreytingarnar á veggjunum
eru líkastar þeim sem þú manst eftir frá því að
þú varst barn.
Hvernig stendurá þessu —mittiöllum tækni-
uhdrunum?
Skýringin er auðvitað mjög einföld. Jólin eru
og veröa alltaf frábrugðin hversdagsleikan-
um, likt og vin i eyðimörkinni — eitthvað sem
fólk hlakkar til og biður eftir með óþreyju.
Árið 2001 verður fólk almennt búið að átta sig
á þviað jólin eru annað og meira en uppskrúf-
uð kaupvertíð sem endarmeðþvíað allir verða
dasaðir, ofmettaðir og sljóir. i algleymi tækni-
aldar fer fólk aftur að leita að einhverju sem
glataðist í hringiðu örtölvubyltingarinnar; innri
friði og snertingu við náttúruna. Fólk fer aftur
að finna til gleði yfir að fá handskrifuð jólakort,
að ekki sé nú talað um heimatilbúnar jólagjafir.
Handprjónaðir vettlingar fá meira gildi en
videóspóla — blómvöndur meira gildi en bíl-
skúrshurðaopnari...
Þvi meira sem tilbúin tækniþægindi hrifsa til
sín af mannlegu eðli, þvi mikilvægara verður
hlutverk jólanna. Þau verða í ríkari mæli það
sem þeim var ætlað að vera frá upphafi —
hátið sálarinnar.
Þorsteinn Eggertsson.
Gleðileg jól.
Myndlistanámskeið--------------------------
/ ársbyrjun 1983 hyggstég efna til myndlistanámskeiðs
að heimili mínu, Ránargötu 36 í Reykjavik, efnæg þátt-
taka fæst. Námstíminn verður 6 vikur; 2x2 stundir i viku
og námsgreinarverða: ágrip aflistasögu, litameðferð og
litafræði, teiknun, formfræði og uppbygging. Áætlaður
nemendafjöldi er 6 - 8 manns. Þeir sem hafa áhuga
hringi imig eða hafi samband fyrir20. desember.
Þorsteinn Eggertsson
" Ránargötu 36,101 Reykjavík, sími 91-12684«
FAXI-197