Faxi - 01.12.1982, Síða 44
Skýrsla um starfsemi
Málfundafélagsins Faxa
1981-1982
Starfsemi Faxa var með svipuð
sniði og undanfarin ár. Haidnir voru
11 máifundir og síðan afmælis-
fundur og aðalfundur. Umræðuefni
á fundunum voru:
Er engin önnur leið? - framsögum. Jó-
hann Pétursson
Á að gefa útvarpsrekstur frjálsan? -
framsögum. Hilmar Pétursson
Árferði og afkoma-framsögum. Krist-
ján Jónsson
Ár aldraðra - framsögum. Egill Þor-
finnsson
Unglingaskipti vinabæja okkar - fram-
sögum. Helgi Hólm
Rekstur atvinnufyrirtækja - framsög-
um. Margeir Jónsson
Stóriðja - framsögum. Karl Steinar
Guðnason
Suðurnesja rithöfundar 1981 - fram-
sögum. Gunnar Sveinsson
Byggðasafnið á Vatnsnesi - framsög-
um. RagnarGuðleifsson.
Hver er vörn okkar Suðurnesjamanna
ef til styrjaldar kemur? - framsögum.
Huxley Ólafsson
Peningamálin og Sparisjóðurinn —
framsögum. Jón Tómasson
Leikhúsferð var farin þann 10.
janúar og séð Hús skáldsins eftir Hall-
dór Laxnes.
Stjórn Faxa skipuðu s.l. starfsár
Gunnar Sveinsson, Egill Þorfinnson
og Jóhann Pétursson.
Gunnar Sveinsson.
Árnesingafélagið í Keflavík
lét ekki ár aldraðra líða hjá án þess að
gera því nokkur skil. Það bauð öllum
Ámesingum fæddum 1915 og fyrr, til
kaffiveislu ásamt skemmtiatriðum síð-
asta sunnudag í nóvember.
Friftrik Friðriksson
varð aftur sölukóngur í nóvember,
seldi yfir hundrað blöð. Hann tók það
að visu fram að vinur sinn hefði hjálp-
aðsér svolítið.
Foreldra og kennarafélag
Barnaskólans í Keflavík
hélt aðalfund sinn í okt. s.l.
Fráfarandi formaður Drífa Sigfús-
dóttir gerði grein fyrir starfi stjórnar-
innar á starfsárinu og afhenti Barna-
skólanum að gjöf sambyggt útvarps-
og kassettutæki af Sony gerð. Vil-
hjálmur Ketilsson skólastjóri veitti gjöf-
inni móttöku og þakkað hana og ágætt
starf félagsins.
Stjórn félagsins skipa nú:
Úr hópi foreldra Eygló Þorsteins-
dóttir formaður, Jónína Guðmunds-
dóttir, Björg Ólafsdóttir, Erna Björns-
dóttir, Bjargey Einarsdóttir, Sigrún
Ólafsdóttir og til vara Gunnar Friðriks-
son og Jakob Kristjánsson.
Úr hópi kennara eru í stjórninni þær
Elísabet Jensdóttirog Sigurbjörg Hall-
dórsdóttir.
Tombóla nemenda Barnaskól-
ans í Keflavík
var haldin 6. nóv. s.l. Ágóðinn varð
að þessu sinni 22.580 kr. og rann hann
Þau unnu vel! — Hópur ánægðra nemenda hvílist að lokinni tombólunni.
til Styrktarfélags aldraðra á Suður-
nesjum.
Jólaföndrið
Hinn árlegi jólaföndurdagur For-
eldra- og kennarafélags Bamaskól-
ans I Keflavík var að þessu sinni laug-
ardaginn 27. nóv. Eins og í hin tvö fyrri
skiptin var þátttakan mjög góð og
greinilegt að allir undu sér vel enda
fyrir því séð að verkefnin voru miserfið
enda þátttakendur á ólíkum aldri.
Kór Keflavíkurkirkju
Nú er að koma á markaðinn kassetta
og hljómplata með söng Kórs Kefla-
víkurkirkju auk tveggja annarra kirkju-
kóra. Allt eru það jólasálmar, sem kór-
arnir syngja.
Að útgáfu þessari stendur útgáfu-
starfsemin Skálholt. Kórarnir sem
þátt taka í söngnum voru valdir af
söngmálastjóra. Hver kór um sig
syngur fimm sálma, en auk Kórs
Keflavíkurkirkju er hér um að ræða Kór
Bústaðakirkju og Dómkirkjukórinn.
Organisti og söngstjóri Kórs Kefla-
víkurkirkju er Siguróli Geirsson en
raddþjálfun hefur annast söngkonan
Ragnheiður Guðmundsdóttir,
skólastjóri Tónlistarskólans í Vogum.
Meðhjálparaskipti urðu í
Keflavíkurkirkju
fyrsta sunnudag í aðventu 28. nóv.
s.l. Sigurvin Pálsson, sem verið hef-
ur meðhjálpari og kirkjuhaldari síðan
árið 1975 lét nú af starfi vegna aldurs
og heilsubrests, en viö starfinu tók
Böðvar Þ. Pálsson sem á að baki
langt starf við kirkjuna en hann hefur
sungið í kirkjukórnum í yfir 40 ár.
Bamaheimilið Garðasel
Fyrir fjórum árum var fyrsta þroska-
hefta bamið tekið inn á Garðsel. Að
sögn Maríu Valdimarsdóttur, forstöðu-
konu, var barnið tekið inn af biðlista án
beiðni frá athugunar- og greiningar-
deild. Tilraun þessi gafst vel og eftir að
barnið hafði verið þar í nokkrar vikur
fékk Garðasel heimsókn frá stjórn
Þroskahjálpar á Suðurnesjum og
deildarstjóra greiningardeildarinnar í
Kjarvalshúsi. í kjölfar þeirrar heim-
sóknar var ákveðið að vista þrjú
þroskaheft börn af Suðurnesjum til
viðbótar í Garðaseli. Þörf fyrir þessa
þjónustu virðist vera mikil og fljótlega
varð enn að bæta við tveimur börnum í
Garðasel og síðan tveimur börnum
komið fyrir í barnaheimilinu Tjarnar-
seli.
Bæjaryfirvöld í Keflavík
hafa, að sögn Maríu, verið mjög já-
kvæð og skilningsrík við aðstoð og
vistun þroskaheftra, veitt allan þann
aukastarfskraft er til hefur þurftog veitt
fjárveitingu til kaupa á hjálpargögnum
eftir þörfum. Allt starfsfólkið hefur mjög
jákvætt hugarfar fyrir vistun þessara
barna og samgleðjast ef aukinna já-
kvæðra viðbragða verður vart hjá
börnunum.
Bláa lónið í heimsfréttum
Annað slagið berast fréttir af því ut-
an úr heimi að Bláa lónið og Hitaveita
Suðurnesja við Svartsengi haf i verið til
umfjöllunar í ræðu eða riti. í nýút-
komnu hefti tímaritsins Rotary Norden
sem gefið er út i 55.000 eintökum og
sent er jafnmörgum Rótarímönnum
um öll Norðurlönd, er grein um Bláa
lónið. Þar er sagt frá því að grein, sem
Jóhann Pétursson, póstmeistari og
f.v. umdæmisstjóri íslenska Rótaríum-
dæmisins, sendi Rotary Norden hafi
vakið mikla eftirtekt. Ingimund Fænn,
Rótary félagi í Bergen skrifaði grein í
Bergens Tidende eftir lestur greinar
Jóhanns og fékk margar upphringing-
ar og fyrirspurnir varðandi lækninga-
mátt vatnsins í lóninu og þeirraefna er
FAXI-224