Faxi - 01.12.1982, Qupperneq 45
það hefur að geyma. Hann telur mik-
inn áhugafyrir þvi meðal PSORIASIS
sjúklinga i vestur-Noregi að leita sér
lækninga við lónið. Tugmiljónirmanna
um allan heim þjást af þessum erfiða
sjúkdómi.
Blóðsöfnun
Björgunarsveitin Stakkur mun
gangast fyrir blóðsöfnun í samvinnu
við Blóðbankann 20, desember næst
komandi. Söfnunin fer fram í SKÁTA-
HEIMILINU við Hringbraut sem fyn.
Mun söfnunin standa yfir I aðeins einn
dag eins og áður. Vonandi bregðast
Suðurnesjamenn ekki þessu kalli frek-
ar en venjulega. Rétt er aðbendafyrir-
tækjum og stofnunum á, að iðulega er
árdegis tíminn illa nýttur, og ætti þá að
vera möguleiki að taka á móti stærri
hóþum og afgreiða þá á skemmri tíma.
Hefur Árni V. Árnason séð um undir-
búning þessara safnana undanfarin
ár, er stjórnendum fyrirtækja og stofn-
ana bent á hann, vilji þeir eitthvað hag-
ræða sínum hópum betur.
Flugeldar
Stakkur mun um þessi áramót sem
fyrr bjóða Suöurnesjamönnum flug-
elda til sölu. Er flugeldasalan ein aðal
tekjulind Stakks, og eins og flestum er
kunnugt kostar rekstur svona sveitar
mikla peninga, þótt svo að allt starf
félaganna sé sjálfboðaliðsvinna. Þar
að auki hafa björgunar- og hjálpar-
sveitir verið að endurnýja fjarskipta
búnað sinn og er það vægast sagt
mjög dýrt. Sem dæmi um kostnað þá á
Stakkur í pöntun 4 handstöðvar sem
hver um sig mun kosta um 16.000. En
það er engin sþurning um hvort þetta
borgar sig, því í nýafstaðinni al-
mannavarnaæfingu sem haldin var á
Keflavíkurflugvelli, kom svo greinilega
í Ijós hversu góð tæki þessi eru, að ég
held mér sé óhætt að fullyrða að fjar-
skipti hafi aldrei verið jafn góð og
áreiðanleg. Ekki er Stakkur búinn að
endurnýja öll sín tæki, enda sveitin
staðið i ströngu síðustu mánuði. Um
síðustu áramót fékk sveitin tværnýjar
bifreiðar, og þó ein eldri bifreið hafi
verið seld þá dugði það ekki fyrir nema
annarri af þeim nýju. Síðan skemmdist
húsnæði sveitarinnar mikið í óveðri i
janúar s.l. og vonast Stakksfélagar til
að geta náð endum saman á næsta
ári.
Jeppakeppni
Stakksfélagar héldu sína árlegu
jeppakeppni í september síðast liðn-
um. Tókstkeppnin í allastaði mjög vel.
Það munu um 1700 manns hafa horft á
keppnina og ábyggilega fengið
skemmtun við sitt hæfi. í ár brá svo við
að þátttakenda fjöldi var mun meiri en
verið hefur síðustu ár. Einnig hafa bif-
reiða innflytjendur farið að sýna þess-
ari keppni áhuga og voru nú með bif-
reiðar sinar til sýnis í keppninni. Mælt-
ist þessi nýjung vel fyrir hjá áhorfend-
um enda meiri hluti jeppaáhugafólks á
suðvestur horninu sem er þarna sam-
ankominn.
Vetrar^tarfið
Ekki hefur annríki verið hjá sveitinni
það sem af er vetri. Þó hefur sveitin í
tvígang verið að störfum vegna óveð-
urs og ófærðar. 4 æfingar hafa verið
haldnar, þar af ein mjög vel heppnuð
æfing með fluglínutæki. En skömmu
áður hafði erindreki S.V.F.Í. komið á
fund hjá Stakki og ræddi við og fræddi
félagana um fluglínutæki og sjóbjörg-
un almennt. En það er ekki vist að allir
viti að Stakkur hefur í sinni umsjá sjó-
björgunartæki eða fluglinutæki svo-
kölluð. Tækin eru i eigu Slysavarna-
félagsins en Stakkur annast þau og
notar. Sömu sögu er að segja um
Slysavarnaskýlið sem stendur við
Fiskiðjuna, að það er í eigu Slysa-
varnafélagsins, en í umsjá Stakks.
Starfandi er í Keflavík Kvennadeild
Slysavarnafélagsins sem í raun á
slysavarnaskýlið og þessi tæki þótt
þessir hlutir séu kenndir við félags-
skapinn og höfuðstöðvar hans í
Reykjavík. Góð samvinna hefur veriö
undanfarin ár með Stakki og S.V.F.Í.
þótt Stakkur tilheyri ekki félaginu eða
neinum öðrum slikum landssamtök-
um. Sömu sögu er að segja um sam-
vinnu Stakks og Landssambands
Hjálparsveita Skáta, en seinni ár hefur
samstarf allra björgunaraðila i landinu
stórbatnað. Má þakka það að sumu
leyti Almannavörnum Ríkisins eða öllu
heldur skipulagi því sem þær hafa látið
fram fara, en þar i og i umræðu um það
hafa þessir aðilar fengiö hlutverk sem
þeir hafa kannski ekki allir verið sáttir
við en samt tekið að sér að sjálfsögðu.
En þeir hafa líka þurft að aðlaga sina
starfsemi til að geta sinnt þessu hlut-
verki og einnig þurft að hafa samvinnu
sín á milli. Má þar nefna til dæmist
Björgunarskóla Islands.
Að lokum!
Stakksfélagar vilja þakka þeim
mörgu aðilum sem hafa aðstoðað
sveitina á ýmsa vegu í ár. Sveitinni
hafa borist mjög höfðinglegar pen-
ingagjafir, og fyrirtæki hér í bæ hafa
veitt sveitinni góðan greiðslufrest, en
hvoru tveggja hefur komið sér ákaf-
lega vel. Er þessi mikli skilningurbæj-
arbúa félögunum mikil hvatning til að
halda áfram, og leggja ekki árar í bát
þótt móti blási.
Þ.M.
Frá verðlaunaafhendingunni. Verðlaunahafar ásasmt sparisjóðsstjórum og stjórn Sparisjóðsins i Keflavik. Talið frá
vinstri: Páll Jónsson sparisjóðsstjóri, Jón H. Jónsson, Finnbogi Björnsson, Marteinn Árnason stjórnarformaður, Odd-
geir Pétursson verðlaunahafi, Einar Guðberg Gunnarsson, formaður Þroskahjálpar á Suðurnesjum, og Tómas Tómas-
son sparisjóðsstjóri.
Sparísjóðurínn í Keflavík:
Verðlaunar Oddgeir Pétursson
og Þroskahjálp á Suðumesjum
í tilefni 75 ára afmælis spari-
sjóðsins hinn 7, nóvember 1982
samþykkti stjórn Sparisjóösins í
Keflavík að veita nú og framveg-
is árlega allt að kr. 75.000 í þeim
tilgangi sem að neðan greinir.
Fjárhæðin sé veitt árlega ein-
um eða fleiri aðilum á Suður-
nesjum sem verðlaun fyrir fram-
úrskarandi árangur, hvort heldur
er á sviði menningarmála, í verk-
legum efnum eða fyrir önnur af-
rek. Fjárhæðina má einnig veita
sem óendurkræfastyrki til hverr-
ar þeirra starfsemi sem til heilla
má verða fyrir íbúöa á Suður-
nesjum og styrkhæf getur talist
að mati úthlutunarmanna.
Auglýsa skal með nægum fyr-
irvara eftir umsóknum eða
ábendinum. Úthlutun skal fara
fram árlega hinn 7. nóvember,
en úthlutunarmenn ákveða
hverju sinni upphæð verðlauna-
fjár eða styrks til einstakra aðila.
Skráð skal í gjörðabók út-
hlutunarmanna nöfn verðlauna-
hafa og eða styrkþega, helstu
æviatriði þeirra, svo og stutta
greinagerð fyrir úthlutun. Þrír út-
hlutunarmenn skulu kosnir ár-
lega á aðalfundi Sparisjóðsins í
Keflavík hvort heldur úr röðum
ábyrgðarmanna sparisjóðsins
eða utan.
Ákvörðun úthlutunarmanna
skal lögð fyrir stjórn sparisjóðs-
ins til endanlegrar samþykktar.
Með tilvísun til ofanritaðs,
samþykkir stjórn Sparisjóðs
Keflavíkur nú að úthluta til eftir-
talinna aðila
1. Þroskahjálp á Suðurnesjum
kr. 50.000 vegna mikillar
þarfar og stórmerks starfs fé-
lagsins í þágu þroskaheftra á
svæðinu.
2. Oddgeir Pétursson, Garða-
vegi 13, Keflavík kr. 25.000
sem viöurkenning fyrir hugvit
og framtak á sviði tækjabún-
aðar í fiskvinnslu.
(Fréttatilkynning)
FAXI - 225