Faxi - 01.12.1982, Side 62
Innanhússknattleikur:
Keflvtkingar efstir í úrvalsdeildinni
Reynismenn koma á óvart í köifu- og handknattleik
Innanhússiþróttirnar eiga vax-
andi vinsældum að fagna á
Suðurnesjum, bæði á meðal
iðkenda og áhorfenda. Stafar
það af hinum góða árangrí sem
liðin á Suðurnesjum hafa náð
að undanförnu. Ber þar hæst lið
ÍBK í Úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik, þar sem jjeir nýliðarn-
ir eru í efsta sæti ásamt Val,
þegar þetta er ritað. Liklega
væru þeir einir í efsta sæti ef
þeir hefðu ekki orðið að sjá á
bak þjálfara sínum og leikmanni
Tim Higgins, sem án nokkurra
skýringa hvarf aftur vestur til
Bandaríkjanna, eftir að hafa
dvalið hér í nokkrar vikur á sínu
seinna leiktímabili með ÍBK. í
hans stað er kominn annar að
vestan, Brad Mily, sem ætlar að
freista þess að halda uppi merk-
inu og leiða ÍBK til sigurs í Úr-
valsdeildinni, en tvö töp án út-
lendings kunna að gera strik í
reikninginn hjá ÍBK, — en mótið
erekki nema rétthálfnað ennþá,
svo fullsnemmt er kannski að
spá. Hinu er samt ekki að neita
að ÍBK hefur á að skipa ungum
og efnilegum leikmönnum sem
eru ámikilli uppleið.
Ekki gengur Njarðvík-
ingum allt í haginn
íslandsmeisturum UMFN hefur
ekki gengið allt í haginn. Erfrtt hef-
ur þeim reynst að fylla skarð snill-
ingsins Danny Shouse, sem lék
með þeim tvö síðastliðin ár
og átti mikinn þátt I velgengni
þeirra. Bandaríkjamaðurinn há-
vaxni Alex Gilbert stanzaði stutt
hjá þeim og reyndist ekki vera sá
leikmaður og þjálfari sem þeir
voru að leita eftir. í hans stað er
nýkominn annar Bandaríkjamað-
ur, Bill Kotterman, sem lofar mjög
góðu. UMFN er því engan veginn
út úr myndinni hvað íslandsmeist-
aratitilinn varðar og mér segir svo
hugur um að slagurinn muni í lokin
standa á milli l'BK og UMFN með
þá yngri snillinga innanborðs, þá
Axel Nikulásson og Val Ingimund-
arson, auk margra annarra efni-
legra pilta.
Jónasi gengur vel
í Sandgerði
í spjalli okkar um risana í körfu-
knattleiknum, ÍBK og UMFN, þá
megum við ekki gleyma þeim
smáu sem eru vaxandi og gætu
fyrr en varir farið að standa upp í
hárinu á þeim stóru. Reynismenn
sem hafa fyrir ári eða svo stofnað
körfuknattleiksdeild, eru á góðri
leið meðað vinna sig upp í ll-deild
og ætli sú l-sé þá langt undan.
Þeir fengu til liðs við sig Jónas
Jóhannesson, sem áður lék með
UMFN og ætlar honum að lánast
vel með Reynisliðið, þótt hann geti
ekki leikið af fullum krafti vegna
meiðsla í hné, sem þó stendur til
bóta með uppskurði.
Grindvíkingarnir,
með sínar erfiðu aðstæður létu
færa sig skör neðar, en þeirhöfðu
rétt til, sigla hægan byr í ll-deild-
inni og þeir bíða þess að úr rætist
með aðstöðu fyrir innanhúss-
íþróttir í Grindavík, — að nýja hús-
ið sem er í byggingu verði tekiö í
notkun, en óðum fer að styttast í
það.
Kvenþjóðin herjar einnig í
körfuknattleiknum í íslandsmót-
inu, en Suðurnesjastúlkurnarhafa
ekki átt góðu gengi að fagna gegn
valkyrjum rótgrónu liðanna, en
eiga vonandi eftir að bæta sig
þegar fram líða stundir með auk-
inni þátttöku kvenna í þessari vin-
sælu íþrótt.
Fer Árni Stefánsson með
Reyni upp í ll-deild?
Ekki fara miklar sögur af hand-
knattleiksfólki okkar utan Njarð-
víkurstrákanna, sem hafa gert
garðinn frægan undir leiðsögn
Ólafs Thordersen, bæði hérlendis
og erlendis. Þó er rétt að geta eins
liðs, meistaraflokks Reynis, sem
hefur unnið hvern sigurinn áfætur
öðrum í lll-deildinni, seinast ÍBK
og er nú í öðru sæti. Benda allar
líkur til þess að Hafnfirðingnum
Árna Stefánssyni muni takast að
lyfta þeim upp í ll-deildina á þessu
leiktímabili.
emm.
Við óskum öllu starfsfólki okkar
og öðrum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
ogfarsældar á
komandi ári.
GAUKSSTAÐIR HF.
GARÐI - SÍMI 7949
FAXI-242