Faxi - 01.01.1988, Qupperneq 11
talaði um þá sem vini sína. Fiski-
miðin sem hann sótti mest mynda
hring um Sandgerði: Hafnaleir-
inn, Miðnessjór, Eldeyjarbanki,
Kantar og Garðsjór. Allt kunn
fiskimið, heimur út af fyrir sig,
þar sem hann þekkti sig öðrum
betur. Þar hefur aflast mikið um
dagana. Oft var Magnús með einn
aflahæsta bátinn ef ekki aflahæst-
ur. Þótt starfsdagurinn væri ekki
langur var dagsverkið mikið að
vöxtum.
Magnús gaf sér auk þess tíma til
að sinna félagsmálum. Hann var í
stjóm Útvegsmannafélags Suður-
nesja. Störf hans þar vom mjög
niikils metin og mikið tillit tekið
til þess sem hann hafði til mál-
anna að leggja. Stjóm félagsins
þakkar störf hans og vottar fjöl-
skyldunum báðum, em um sárt
eiga að binda, innilega samúð.
Eg flyt hér einnig samúðarkveðj-
ur til fjölskyldnanna frá félögum
fians í Vísi, félagi skipstjómar-
ntanna á Suðurnesjum og síðast
en ekki síst frá fjarstöddum ætt-
mgjum hans í Bandaríkjunum.
Sumir þeirra eru komnir langan
veg til að minnast hans. Fjöl-
skylda Magnúsar þakkar öllum
sem orðið hafa að liði bæði þegar
slysið varð og eins þá erfiðu daga
sem á eftir fylgdu. Við biðjum
góðan Guð að leggja nú sem ávallt
líkn með þraut.
Þeir sem komust af: Einar
Magnússon, Gunnar Magnússon
og Sverrir Víglundsson hafa allir
greint skilmerkilega frá slysinu, ef
það mætti verða öðmm að liði.
bað er til fyrirmyndar. Björgunar-
ntál sjómanna þurfa að vera í stöð-
ugri endurskoðun, þótt við sjáum
ekki slysin fyrir. Það er besta af-
ntælisgjöfin á 60 ára afmæli Slysa-
vamafélags íslands.
Eg hef þá trú að sérhvert áfall
eigi að vera sem nýtt upphaf. Við
skulum lifa upprisumegin við
krossinn og takast á við lífið. Þeg-
ar talað er um að efla útgerð á Suð-
umesjum verður það að helgum
ásetning á stundum sem þessum.
Löngunin til þess að takast á við
lífið skiptir öllu máli. Þegar
Magnús var með Andra í áratug,
fyrir tíma radarsins, varð hann
stundum að sigla upp að Eldey í
svarta þoku til þess að ná áttum.
Honum þótti alla tíð gott að hafa
Eldey í augsýn. Ekkert hefði hann
fremur kosið en að við næðum átt-
um hér í dag, þrátt fyrir skugga
sorgarinnar. Við skulum taka mið
af Jesú Kristi, , .bjarginu alda“,
svo þessi stund marki skuggaskil.
Hver sem fylgir Kristi mun ekki
ganga í myrkri. Leyfum nýárssól-
inni að leggja smyrsl á lífsins sár.
Við skulum lfta upp og lifa, full-
viss þess að allt sem Guði er falið
muni fara vel. Látnir félagar em í
fylgd hans sem er upprisan og líf-
ið. Við felum þá Guði til eilífs lífs.
Vemm um leið minnug orða
skáldsins er það segir:
,, Ég vildi geta gefid þeim,
sem gjafar þarfnast mest.
Sú gjöfin aðeins yrði að vera
þessi, sem af öllum öðrum
ótvírœðast ber.
Að gefa veilum táp og trú
og traust að bjarga sér.
Hvar sem siðan leið hans lœgi
um lönd og úfin höf
þyrfti hann aldrei, aldrei framar
aðra en þessa gjöf“.
AMEN
Ólafur Oddur Jónsson
Njarðvíkurbær
og
Steindór Sigurðsson
auglýsa
fríar ferðir með Steindóri
mánuðina jan., febr., mars 1988.
FERÐAÁÆTLUN:
Innri-Njarðvík Keflavík
(Frá Seyluhverfi): (SBK):
7.53 *
8.40 8.50
9.40 10.05
10.20 10.40
10.55 11.15
11.30
1Z20 (Skólaferð: Endar við Grunnskolann) 13.15
13.35 * 13.50
14.05 14.40
15.00 15.25
15.40 16.10
16.45 17.15
17.30
Billinn er 5-7 iriin. frá brottför (l-Nj. eða Kvik) í Ytri-Njarðvik.
* 18.50 (mánud., þríöjud., fimmtud.)
frá íþróttah. Y-Nj. til l-Nj.
* 19.20 (mánud., þríðjud., fimmtud.)
frá l-Nj. til iþróttah. Y-Nj.
* 21.35 (mánud. og þríöjud.)
frá íþróttah. Y-Nj. til l-Nj.
* Þessar feröir falla niöur frá 20/5 - 1/9 ’88.
Aö öðru leyti gildir áætlunin út áríö.
Nánari upplýsingar í símum 15444,16200.
FAXI 11