Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1988, Síða 16

Faxi - 01.01.1988, Síða 16
ALDARAFMÆLI í HVALSNESKIRKJU Þann 1. nóvember síðastliöinn, var þess minnst að hundrað ár voru liðin frá því að lokið var við bygg- ingu Hvalsneskirkju og hún vígð, á jóladagárið 1887. Hátíðarguðþjónusta var haldin kl. 16, að viðstöddu miklu fjölmenni, svo miklu að einungis hluti mann- fjöldans komst fyrir í sjálfri kirkj- unni. Því varð úr að í Hvalsneshús- inu var komið íyrir sjónvarps- skermum í nokkrum herbergjum, þar sem fólk gat fylgst með athöfn- inni og var þar þétt setið. Áður er guðsþjónustan hóís gengu hempuklæddir prestar ásamt frú Halldóru Thorlacius sóknamefnd- arformanni og forseta íslands frú Vigdísi Finnbogadóttur sem var í broddi fylkingar, til kirkju. Undir- Vclunnarar Hvalsneskirkju gúju rausn- arlegur gjafir í tilefhi afmœlisins. Hér á myndinni ber sóknarpresturinn, sr. Hjörtur Magni, stólu sem geftn var, en hún er m.a. skreytt steinum úr landi kirkjunnar. Á myndinni sjást einnig út- skorin grafartól og á altarinu stendur fagurlega skreyttur kross. AEG-UMBOÐIÐ Við bjóðum uppá fjölbreytt úrval af heimilistækjum og handverkfærum frá hinu þekkta AEG fyrirtæki. Einnig rafvörur, ljós og lampa í miklu úrvali. Einnig bjóðum við uppá ráögjafa- og rafverktakaþjónustu. RAFBÆR HAFNARGÖTU 18 — SÍMI 14221 ritaður þjónaði fyrir altari og pró- fasturinn sr. Bragi Friðriksson predikaði. Hrafnhildur Guðmunds- dóttir söngkona, flutti stólversið, „Friður á jöiðu“, eftir Áma Thor- steinsson, ljóð e. Guðmund Guð- mundsson. David Knowles annað- ist orgelundirleik. En Hrafnhildur er dóttir sr. Guðmundar Guð- mundssonar fyrrum sóknarprests á Útskálum og hefur hann þjónað Hvalsnessókn um áraraðir. Að lokinni messunni ávarpaði frú Halldóra Thorlacius kirkjugesti fyrir hönd sóknamefndar og bauð til kaffisamsætis í Samkomuhúsinu í Sandgerði. Þar var húsfyllir eins og vænta mátti og nutu allir afmæl- isgestir, þeirra höfðinglegu veitinga sem þar vom fram bomar. Iðunn Gróa Gísladóttir frá Hvals- nesi, flutti fróðlegt erindi um Hvals- neskirkju og sögu hennar og var það mjög upplýsandi fyrir alla sem á hlýddu. Krikjukór Hvalsneskirkju sem hafði áður leitt safnaðargögn í hátíðarmessunni undir stjóm Frank Herlufsens organista, söng nokkur lög og leiddi síðan íjölda- söng. Þá vom margir sem ávörpuðu samkomuna og má þar nefna fyrr- verandi sóknarprest sr. Guðmund Guðmundsson og prófastinn sr. Braga Friðriksson. í tilefni af 100 ára afmæli kirkjunn- ar voru gefnir út áletraðir plattar með mynd af Hvalsneskirkju. Frú Halldóra Thorlacius afhenti nokkr- um velunnumm kirkjunnar númer- aða platta til eignar og má þar helst nefna; sr. Guðmund Guðmundsson fvr. sóknarprest, Guðmund Guð- mundsson á Bala fvr. meðhjálpara, prófastinn sr. Braga Friðriksson, Guðrúnu Guðmundsdóttur ekkju sr. Eiríks Brynjólfssonar, og Katr- ínu Brynjólfsdóttur, systur sr. Eiríks heitins en þær gátu þó ekki verið viðstaddar og vom þeim færðir plattamir síðar. Kirkjunni bárust margar merkar og rausnarlegar gjafir í tilefni þess- ara tímamóta. Af munum sem gefn- ir vom í kirkjuna sjálfa má nefna: - Kross á altari sem gefinn var til minningar um Guðrúnu Guð- mundsdóttur frá Bala. Gefendur vom Guðmundur Guðmundsson frá Bala, böm þeirra og tengdaböm. - Stóla, sem hönnuð var og ofin af listakonunni Ingibjörgu Styrgerði Haraldsdóttur. Gefendur vom fjöl- skyldumar frá Hvalsnesi. - Útskorin grafartól, gefin af Kjal- amesprófastsdæm i. 16 FAXI

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.