Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.01.1988, Qupperneq 27

Faxi - 01.01.1988, Qupperneq 27
hverrar þjóðar er sjálfstæði hennar. Við erum stolt af því að vera íslend- ingar. Við leyfum okkur að njóta sérkenna okkar og viljum varðveita þau. íslensk tunga var eitt megin- vopnið í sjálfstæðisbaráttu okkar fyrr á tímum og málið stóðst áhlaupið sem að því var gert á tím- um danskrar embættismannastétt- ar. Þó ekki væri nema af þeirri for- sendu einni ber okkur skylda til að varðveita tunguna og þar með slá vörð um sjálfstæði okkar. Því nefni ég þetta að á síðustu misserum má segja að blikur hafi verið á lofti. Nú er einangrun þess- arar þjóðar norður í Dumbshafi á mörkum hins byggilega heims rof- in. Að okkur er sótt úr öllum áttum í frumskógi fjölmiðlunar. Og þessi atlaga smýgur til alls þorra þjóðar- innar en ekki einungis til embættis- manna líkt og áður fyrr. Ég heyrði nýlega í ágætu útvarpserindi hvar þessari ásókn ertendra áhrifa á ís- lenska tungu var líkt við hinn þekkta, gríska trjóuhest sem dreg- inn var hægt en bítandi inn í málið. Munurinn er bara sá að út úr þess- um tijóuhesti stökkva ekki vígreifir baráttumenn heldur kónar á borð við Michael Jackson, He man o.s.frv. Afleiðingamar láta ekki á sér standa. Tölur frá bókasöfnum sýna Við á Langbest bjóðum upp á ýmsa rétti til að borða á staðnum eða taka með heim, t.d. okkar vinsælu eldbökuðu pizzur, chick king, kjúklingabita, hamborgara, samlokur, fiskrétti. í hádeginu bjóðum við súpu dagsins m/grófu brauði, fiskrétti og fl. Um helgar erum við alltaf með eitthvað spennandi á matseðlinum. Hafnargötu 20, Sími 14777 Gísli 'lbrfason afhendir Þórdísi Þormóðsdóttur viðurkenningu fyrirgódan námsár- angur. að almennur bókalestur hefur hmnið á síðustu ámm. Þar með er til hliðar lagður sá kennari íslenskr- ar tungu, bókin, sem þjóðinni hefur best dugað fram til þessa. Málfar yngra fólks einkennist í dag af átak- anlegri orðfæð og skrípiorðum ásamt erlendum slettum. Eigi fjöl- skrúðugt málfar að bera vott um djúpa rökræna hugsun þá má spytja hvort þessi átakanlega orð- fæð sé líka merki um hugsunarleysi og deyfð. Við virðumst fljóta sofandi að feigðarósi og höfumst fátt að. Með því móti er tilvera okkár sem sjálfstæðar hugsandi vemr í hættu. Tilveru okkar, sem sjálfstæðir ein- staklingar, er ógnað. Og ekki bara okkar sem einstaklinga heldur líka þjóðarinnar sem heildar. Því glatist tungan er skammt í að sjálfstæði h'ði undir lok eins og dæmin sanna. Ágætu fyrrverandi nemendur, nú hverfið þið á braut. Hvert á sitt starfssvið. Okkur er ljóst að í raun- inni höfum við hér í skólanum af- skaplega lítið kennt ykkur en von- andi veitt ykkur örhtlar leiðbeining- ar þannig að þið getið staðið nokkuð sjálfbjarga, hvort heldur er í frekara námi eða við önnur störf. Við biðj- um ykkur að hafa þessar leiðbein- ingar í huga en umfram allt að bera djúpa virðingu fyrir íslensku máli. Menntun felur í sér að einstakl- ingurinn, hinn menntaði einstakl- ingur kunni að rísa undir nafni. Að hann kunni að hugsa, að hann kunni að njóta tómstunda og tala. Þetta skulu vera lokaorð okkar til ykkar um leið og þið hverfið á braut og við ítrekum við ykkur að bera djúpa lotningu fyrir íslenskri tungu og að þar með halda vöku ykkar sem sjálfstæðar manneskjur, ein- staklingar í samfélagi þjóða. Gæfan fylgi ykkur. FAXI 27

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.