Frjáls verslun - 01.05.2002, Qupperneq 37
SÉRFRÆÐINGAR SPÁ í SPILIN
Spumingin til Jóns Karls Ólafssonar, framkvæmdastjóra Flugfélags íslands, er þessi:
Flugfélög í innanlandsflugi á íslandi töpuðu 1,7 milljörðum króna á
síðustu fjórum árum. Hvernig skýrir pú petta mikla tap? Stefnir í að
innanlandsflug leggist niður í sinni núverandi mynd - nema yfir sumar-
mánuðina pegar fjöldi erlendra ferðamanna er mestur?
Er innanlandsflug
að lognast út af?
Eins og oft hefur komið fram, hafa undan-
farin flögur ár verið erfið í innanlandsflugi
á Islandi og eru nokkrar ástæður fyrir því.
Fyrst ber að nefna, að samkeppni varð mjög
hörð í kjölfar opnunar á markaði á árinu
1997 og leiddi lækkun fargjalda almennt til
verri afkomu fyrirtækja í greininni. Ytri
aðstæður hafa verið erfiðar, eldsneytisverð
hefur hækkað mikið og lækkun á gengi
íslensku krónunnar hefur einnig mjög mikil
áhrif. Stór hluti kostnaðar er tengdur við
Bandaríkjadal, en tekjur fyrirtækjanna eru
að mestu í íslenskum krónum. Horfur eru
nú hins vegar mun betri í rekstri. Tekist
hefur að lækka kostnað og nýting fram-
leiðslutækja hefur einnig stórbatnað.
Rekstraráætlun Flugfélagsins gerir ráð fyrir
að afkoma ársins verði nú loks viðunandi.
Innanlandsflug á Islandi er mjög mikil-
vægt fyrir almenningssamgöngukerfi
landsins. Allt frá árinu 1971 hefur mikil
flölgun verið í farþegaflutningum og nemur
ljölgunin að jafnaði um 3,5% á ári allt þetta
tímabil! Þó hafa komið ár, þar sem ijölgun
varð minni og í sumum tilfellum varð jafn-
vel fækkun farþega á milli ára. Slík tímabil
hafa þó alltaf tengst stöðu efnahagslífs
landsins, enda fylgni mikil á milli farþega-
flutninga innanlands og helstu hagstærða.
A árinu 1971 voru farþegar í innanlands-
flugi hér á landi um 155 þúsund, en eru nú
um 450 þúsund á ári. Allt þetta tímabil hefur
áfangastöðum fækkað í flugi og eiga margir
erfitt með að sjá hvernig slíkt getur gengið
upp. Landsamgöngur hafa batnað mjög
mikið og sjá margir það sem ógnun við
rekstur innanlandsflugs. Það er alveg ljóst
að flugið er í mikilli samkeppni við einkabíl-
inn. Landsamgöngur hafa þó ekki aðeins
batnað við höfuðborgarsvæðið, heldur
almennt á öllu landinu. Sem dæmi má
nefna, að áður var flogið til um fimm mis-
munandi áfangastaða á Austfjörðum. Land-
samgöngur voru mjög erfiðar, sérstaklega
yfir veturinn. Þetta hefur gjörbreyst á síð-
ustu 10 árum og nú er rétt um klukku-
stundar ferð frá flestum þéttbýlisstöðum á
svæðinu inn á flugvöllinn á Egilsstöðum og
er ekki deilt um hann sem miðstöð flug-
samgangna á svæðinu. Svipaða sögu er að
segja af öðrum landshlutum. Fækkun
áfangastaða hefur því síður en svo dregið úr
ijölda farþega. Bættar samgöngur leiða yfir-
leitt til aukinna ferðalaga, og flugið fær sinn
skerf af því.
Erlendir ferðamenn hafa í vaxandi mæli
nýtt sér kosti innanlandsflugs, sem eru fyrst
og fremst hraði og þægindi. Gert er ráð fyrir
áframhaldandi vexti, enda fátt sem bendir til
annars en Island verði áfram spennandi
áfangastaður fyrir erlenda gesti okkar.
Stærsti markaðurinn er þó enn hér innan-
lands og það verður svo áfram. Viðskipti
hafa aukist mjög á milli landssvæða og
byggir það að hluta á góðum og hröðum
samgöngum á milli staða. Ég held að flestir
sjái að erfitt verður að stunda samkeppnis-
hæf viðskipti ef ferðatími til dæmis á milli
Reykjavíkur og Akureyrar verður minnst um
3-4 klukkustundir í bíl - hvora leið! Hag-
kvæmni hefur aukist í fluginu og horfur eru
miklum mun betri en áður. Fækkun áfanga-
staða, án fækkunar farþega, bætir nýtingu
framleiðslutækja og bætir afkomu. Auk þess
hafa orðið miklar breytingar í dreifingu
félagsins, þar sem mikill hluti af sölu fer nú
fram í gegnum vefinn í miðalausum við-
skiptum. Þetta hefur sparað mikla ijármuni
fyrir Flugfélagið. Svarið er því einfalt; innan-
landsflug er ekki að lognast út af - síður en
svo. Horfur hafa sjaldan verið betri og við
erum bjartsýn á framtíðina. 33
Jón Karl Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags
íslands: „Tekist hefur að
lækka kostnað og nýting
framleiðslutækja hefur
einnig stórbatnað.
Rekstraráætlun Flug-
félagsins gerir ráð fyrir
að afkoma ársins verði
nú loks viðunandi."
37