Morgunn - 01.12.1938, Blaðsíða 3
MORGUNN
129
Ræður
fluttar við útför prófessors Einars H. Kvarans
ritstjóra Morguns og forseta Sálarrannsókna-
félags íslands, 28. mai 1938.
I.
Húskveðja flutt af séra Kristni Daníelssyni.
Náð sé með yður og friður frá guði föður vorum og
ðrottni Jesú Kristi.
Vér viljum öll biðja: Gæskuríki guð og himneski faðir,
upp til þín lyftum vér hjörtum vorum og biðjum þig að
vera með oss, með náð þinni og með anda þínum á þess-
ari viðkvæmu stund, er frá oss er tekinn að líkamlegum
návistum heimilisfaðirinn hér, hinn elskulegi og trausti
verndari ástvina sinna, tryggi vinur vina sinna og óska-
barn þjóðarinnar. Góði guð lát þinn anda fylla hjörtu vor
og 'stýra hugsunum vorum, og gefa huggun og skilning á
haiidleiðslu þinni. Og lát þinn anda leggja mér þau orð á
tungu, sem hæfa því helga tækifæri, sem kveður oss hér
saman, og þegar ég stend nú i þeim sporum, sem ég hef
lengi kviðið fyrir, en einnig jafnlengi ásamt yður ástvinum
hans beðið og vonað, að það kæmi ekki fyrir, að við ætt-
um að sjá honum á bak, meðan við enn þurftum hans svo
mikið, svo mikið starf enn fyrir höndum, vonuðum, þó að við
öll höfum orðið að biðja eins og hann, sem æðstur og
innilegastur hefir verið á þessari jörð i bæninni til sins
himneska föður: Ef mögulegt er, þá víki þessi kaleikur
frá mér, þó ekki sem ég vil, heldur eins og þú vilt. Og
nú beygjum vér oss í auðmýkt fyrir vilja þínum, sem
einnig ert faðir vor og vilt og veizt hið bezta.
Og nú þegar þetta er komið fram hefir mig langað til
nð mega túlka fátt eitt af tilfinningum mínum á þessari
stund, sem ég er nú siðasta likamlegum samvistum við
hinn látna vin minn á þessum stað, sem geymir svo marg-
9