Morgunn - 01.12.1938, Blaðsíða 107
MORGUNN
231
irlestrinum um „jarðarfarir, bálfarir og trúna á annað líf“, þar
sem hann reiðir rothögg að þeirri heimsku, að lífið glatist nokkurn
tima. Við, sem hlýddum á hann flytja þann fyrirlestur í Báruhús-
inu, megum minnast þess, með hve miklum krafti hann fylgdi
þeim orðum á eftir, svo að áherzlunnar vegna hefðu þau vel mátt
vera þungamiðjan.
Innan aldarfjórðungs — þegar Haraldur Níelsson féll frá —
var kenning spíritismans búin að gagntaka svo íslenzku þjóðina
alla, að viðhorf hennar til andlegra mála var gerbreytt frá því,
sem áður hafði verið; sjóndeildarhringurinn víðari og útsýnin
skýrari. Og þó að þjóðin sé lítil, er það satt, að skipshöfnum
skiftir hún.
„Máttugur er sannleikurinn", sögðu Rómverjar, „og yfirhönd-
ina mun hann fá“.
Öld hefir Ekki þarf að minna íslenzka spiritista á það
afráS goldit“ sem málefni þeirra hefir nýlega beðið,
við fráfall upphafsmanns og leiðtoga hreyfing-
arinnar hér á landi. En víðar er nú mikinn missi að harma, því
svo má heita, að hinir frægustu brautryðjendur spíritismans og
salarrannsóknanna hnígi nú unnvörpum í valinn. Skal hér getið
Ijögurra, sem nýlega eru látnir.
Stanley De Brath lézt í Lundúnum 19. desember síðastliðinn,
hálfníræður að aldri, og mátti heita, að fram í andlátið væri hann
sistarfandi fyrir sitt mikla áhugamál. Hjá honum fóru saman lær-
dómur, vitsmunir, einurð og frábærir mannkostir. Afrek hans í
tágu spíritismans voru mikil og merkileg. Hann var ritstjóri tima-
ntsins Psychic Scicnce, ritaði ótal blaðagreinar og ýmsar bækur, og
l>ýddi rit hinna fremstu sálarrannsóknamanna frakkneskra á enska
tungu, þar á meðal bók Osty’s Supemormal Faculties in Man, sem
er eitt af undirstöðuritum sálarrannsóknamanna, svo að hún er
Jafnvel sett við hliðina á bók Meyers Human Personality. Dr.
Gustave Geley sagði um hana, að hún markaði tímamót i sögu
sálarrannsóknanna.
Cesar de Vesme, ítalskur greifi, frægur fyrir rit sin og rann-
sóknir, andaðist 18. júli, 76 ára að aldri. Hann ritaði á frönsku og
ítölsku, en hin helztu af ritum hans eru til í enskum þýðingum.
Um miðjan ágúst andaðist rithöfundurinn Frank Hives. Hann
1-itaði margar bækur og harla merkilegar um Vestur-Afríku og þar-
lendar þjóðir, en um sálræn efni skrifaði hann að staðaldri í blaðið
Light. Bók hans Glimpses Into Infinity er talin stórmerkileg fyrir
sem þar segir um sálfarir og mjög er ramlega sannað.
Dr. Eugene Osty lézt 20. ágúst, 63 ára að aldri. Hann tólc við
f°rstöðu rannsóknarstofnunarinnar Institut Métapsychique í París
L