Morgunn - 01.12.1938, Blaðsíða 94
218
MORGUNN
Forspár um ófriðarhættuna
í Norðurálfu.
Þeim, sem komnir eru til vits og- ára, mun varla nokkurn
tíma úr minni líða síðari helmingur septembermánaðar,
er öll Norðurálfan stóð á öndinni af ótta fyrir því, að á
hverri stundu væri að hefjast sá ógurlegur hildarleikur,
sem ekki er einu sinni hægt að gjöra sér neina hugmynd
um, hve hryllilegar skelfingar hann mundi af sér leiða, er
ekki að eins allt úrval karlmanna yrði kvatt til hernaðar
frá ástvinum sínum, til að láta líf sitt unnvörpum, heldur
einnig, eins og nú er hernaði háttað, konur og börn verða
myrt með hræðilegum kvölum þúsundum saman með þeim
vítisvélum, sem hugvit mannsins hefir fundið upp, og
þeim sem þó lifa eftir búnar þær hörmungar, sem engin
orð fá lýst.
Á þessu angistartímabili veittist þó þeim, sem fyrir nú-
tiðar sálarrannsóknir hafa fengið og þekkja samband við
verur, sem komnar eru á æðra tilverustig, sú huggun, að
komið höfðu og voru að koma um þessar mundir frá stjórn-
endum margra ágætra miðla á Englandi, skeyti, sem fóru
í þá átt, að England mundi ekki lenda í ófriði og þá eng-
inn ófriður verða, því að ef hann yrði, þá var vitanlegt
að England gat ekki komizt hjá að taka þátt í honum.
Og margir fleiri en sálarrannsóknamenn munu á þessum
dögum hafa fengið af þessu nokkra hughreystingu í kvíða
sínum, því að það er nú svo komið að áhrif sálarrannsókn-
anna ná til fleiri en þeirra, sem sjálfir taka þátt í þeim
eða beint samsinna þeim. Andasambandið og sú þekking,
sem með því fæst, er orðin svo óhrekjandi staðreynd, að
þótt verið sé að mótmæla því, er það kraftlaust, getur að
vísu tafið fyrir áhrifunum, en ekki komið í veg fyrir þau.
Nokkur af þessum skeytum birti eitt af sálarrannsókna-
blöðunum ensku, vikublaðið „Psychic News“, 17. sept.,