Morgunn - 01.12.1938, Page 116
240
MORGUNN
nútíðarmanna í því lífsskoðanareiki og efasemdum, sem
einkennir þá.
Fyrir því er hér enn notað tækifærið, til að heita vin-
samlega en þó fast á hina mörgu vini, sem Morgun vissu-
lega á, hvort sem þeir eru í félaginu eða ekki, að ljá hon-
um drengilega lið sitt, svo að ekki ásannist lengur orð-
takið, að hann sé mest lesna en minnst keypta tímaritið.
Ef áskrifendum ritsins fjöigaði að dálitlum mun, mundi
verða unnt að stækka ritið eða láta það koma oftar út, eða
hvorttveggja. Án kaupendafjölgunar yrði það ekki hægt,
því að þau rit eru jafnaðarlega dýrari, sem hafa eitt aðal-
efni að áhugamáli og eiga því mest undir stuðningi þeirra,
sem áhuga hafa fyrir því máli.
Einn vinur Morguns og málefnisins úti á landi, þó ekki
i fjölmennu héraði, hefur útvegað 10 eða 12 nýja kaup-
endur. Mikið má ef vel vill.
Á þetta skal sérstaklega bent hinum mörgu góðu fé-
lagsmönnum og konum, sem hafa allan vilja á, að leggja
nokkuð til þessa mikla máls, en finnst þeir lítið geta gjört,
að þessu mundu flestir geta stuðlað að, að útvega Morgni
nýja kaupendur, einn eða fleiri.
1 þeirri von, að eiga enn eftir um langa framtíð að koma
á fund lesenda sinna, árnar Morgun þeim öllum blessunar
á komandi ári.