Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Page 7

Morgunn - 01.12.1986, Page 7
PETUR PETURSSDN: Trúarlegarhreyfingar í Reykjavík fvo fyrslu áratugi 20- aldar Þriðji hluti Spíritisminn og dultrúarhreyfingin Hér birtist þriðji og siðasti hluta af ritgerð höfundar um trúarlegar hreyfingar hér á landi í upphafi 20. aldar. Fyrsti hluti ritgerðarinnar þar sem gerð er grein fyrir nýjum jarðvegi fyrir trúmálaumræðu og nýjum trúarstefnum birtist í Sögu 1980, en annar hlutinn, þar sem fjallað var um KFIJM og skyld félög birtist í Sögu 1981. f þessum þriðja hluta ritgerðar- innar er fjallað um spíritismann og dultrúarhreyfinguna. Lýst er land- námi spiritisma og guðspeki hér á landi, raktar þær hatrömmu deilur, sem urðu um spiritismann á fyrsta áratugi þessarar aldar, en þá réðst afstaða manna til hans mjög af stjórnmálaskoðunum þeirra. Meginkenning höf- undar er sú, að dultrúarhugmyndir brjóti sér farveg upp á yfirborð á tímum örra þjóðfélagsbreytinga, líkt og áttu sér stað hér í upphafi aldar- innar. Þá setur hann fram þá kenningu að dultrúarhreyfingin, þ. e. spiritismi, guðspeki og dulhyggja frimúrara, hafi gegnt ákveðnu hug- myndafræðilegu hlutverki fyrir rísandi borgara- og millistétt á öðrum og þriðja áratugi aldarinnar. Inngangur. Það sem hér er átt við með „dultrúarhreyfingunni á Is- landi“, er í raun ekki samstæð heild, heldur samsafn af hugmyndum og stefnum sem eiga margt sameiginlegt en eru í einstökum atriðum á öndverðum meiði. En það er svo margt, sem tengir og sameinar, eins og sýnt verður fram á hér, að ástæða er til að tala um breiða hreyfingu með rými fyrir ólík áhersluatriði innan sinna vébanda. Einnig má tala um hliðargreinar frá meginhreyfingunni. morgunn 5

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.