Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Side 8

Morgunn - 01.12.1986, Side 8
Aðalstofninn í þessari hreyfingu á Islandi er spiritism- inn. Hann birtist að hluta til í meira eða minna mótuðu hugmyndakerfi byggðu á ákveðnum kenningum og við- horfum er einkenna hann sem alþjóðahreyfingu. En spíri- tisminn birtist þó fyrst og fremst í búningi sem ekki hefur einkenni altækra eða afleiddra (abstrakt)hugmynda held- ur miðast hann við jarðbundin og ,,raunveruleg“ fyrir- brigði sem eru uppistaðan í persónulegri reynslu þeirra er fyrir þeim verða. Þessi óvenjulegu fyrirbrigði eru oftast nefnd „dularfull fyrirbæri". í nánum tengslum við nútíma spíritisma eru svokallaðar sálarrannsóknir (psychic reserch) og segja má að þær séu forsenda þess spíritisma sem hér verður fjallað um í þessum þriðja og síðasta hluta ritgerðar minnar um trúarlegar hreyfingar í Reykjavík tvo fyrstu áratugi þessarar aldar. Með orðinu sálarrannsóknir á ég hér við skipulega athuganir á þeim óvenjulegu fyrir- brigðum sem spíritistar segja að stafi frá öðrum heimi, nánar tiltekið öndum framliðinna. Þessi fyrirbrigði hafa orðið spíritistum tilefni til kenninga um annað líf, eðli til- verunnar og takmark mannsins í alheiminum. Að þessu leyti er spíritisminn viðfangsefni trúarlífsfélagsfræðinnar eins og bent var á í fyrsta hluta þessara ritgerðar sér í Sögu 1980.1 Annar meginstofn dultrúarhreyfingarinnar hér á landi er guðspekin, sem aðallega hefur birst sem hugmyndakerfi, enda er forsenda hennar og aðferð fremur andleg íhugun heimspekilegs eðlis (mystik). Hin dularfullu fyrirbæri gegna þó mikilvægu hlutverki í guðspekinni og sögulega séð er hún að einhverju leyti vaxinn upp af þeim.2 Margir spíri- tistar, sem lagt hafa áherslu á hina hugmyndafræðilegu hlið spíritismans, hafa aðhyllst svipaðar hugmyndir og kenningar og guðspekin; hefur endurholdgunarkenningin 1. Sjá aftanmálsgrein 1. 2. Roy Wallis, Ideology, Authority and the Development of Cultic Movements. 1 Social Research 1974, bls. 319 og áfram. Sjá einnig neðanmálsgreinar 9 og 10. 6 MORGUNN

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.