Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Page 15

Morgunn - 01.12.1986, Page 15
játningagrundvöll kristinnar trúar.16 Eins og greint verður frá hér á eftir, sögðu íslenskir spíritistar og guðspekingar sig ekki úr lögum við kirkjuna, en þeir gagnrýndu þessi atriði að svo miklu leyti sem þeir töldu þau vera hindrun á þroskabraut þess einstaklings, sem í einlægni leitaði að kærleiksríkum Guði. PÓLITlSKT GILDI SPlRITISMANS Eiga fyrirbrigðin sér stað t raun og veru? Grundvallarspurningin var auðvitað. Eiga hin dularfullu fyrirbrigði sér stað í raun og veru og hvers eðlis eru þau? Tilraunafélagið var stofnað tii þess að athuga málið, og ekki verður annað sagt en því hafi tekist bærilega að koma undir sig fótunum fjárhagslega og vekja áhuga manna á rannsóknunum. Sennilega hefur einmitt þessi tilkomumikli ytri búnaður, félagar úr efri stigum þjóðfélagsins, stjórnin, húsið o. s. frv. gert það að verkum, að spurningin um raun- veruleika fyrirbrigðanna varð stærri og óhjákvæmilegri en annars hefði orðið, a. m. k. hefur þetta magnað upp þá ákveðnu andstöðu, sem lýst var hér að framan. Deilurnar hefðu ekki orðið jafn víðtækar í bæjarlífi Reykjavíkur, ef rannsóknirnar hefðu farið fram á einkaheimilum. Það sem mótstöðumönnunum sveið undan sárast, var, að spíritistar kynntu sjálfa sig sem píslarvotta sannleikans og vísinda- legra framfara, og sú stóryrta andstaða, sem málefni þeirra varð fyrir, gerði þá enn vissari í þeirri trú og vakti enn fleiri til íhugunar um það, hvort fyrirbrigðin ættu sér stað í raun og veru. Einar H. Kvaran átti það til að þakka and- stæðingunum fyrir ,,stuðning“ þeira við málefnið, og hefur nokkur sannleikur legið í þeim orðum, e. t. v. meiri en Ein- ar gerði sér þá ljóst. Hann skrifar í Isafold í nóvember 1908: Og ekki hafa ofsóknirnar heldur getað hnekkt starfi Tilraunafélagsins. Það hefir aldrei verið með öðrum eins 15. Drepið var á þessi atriði í öðrum hluta þessarar ritgerðar, Saga XIX 1981, bls. 238. MORGUNN t q

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.