Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Side 19

Morgunn - 01.12.1986, Side 19
sambandi eru einkum athyglisverð þjóðerniseinkenni þess- ara heimspekikenninga, sem greinilega eru skyldar guð- spekinni, enda var Helgi félagi í Guðspekistúkunni í Reykja- vík frá 1914 og hafði einnig fengist við sálarrannsóknir. Eins og ýmsir aðrir, sem fyrst fengust við rannsóknir dular- fullra fyrirbrigða, hafði Helgi verið undir áhrifum efnis- hyggju og vísindahyggju 19. aldar og látið í Ijós efasemdir og gagnrýni á hefðbundnar trúarkenningar kirkjunnar. Þetta kom fram í þeim greinum, er hann skrifaði í blað það, er stúdentar í Kaupmannahöfn gáfu út fyrir aldamót og hét Sunnanfari. Flestir þeirra, er mest höfðu sig í frammi í stjórnmálum af hálfu landvarnarmanna, töldust til þeirra úr hópi menntamannna, er höfðu orðið fyrir mestum áhrif- um frá raunsæisstefnunni og vísindalegri efnishyggju. Það varð þeim, eins og öðrum, mikið áfall, er Brandes snerist öndverður gegn íslenskri sjálfstæðisbaráttu og þjóðernis- stefnu. Hann hæddist miskunnarlaust að henni í greinum í Politiken í lok desember 1906.° Fylgi margra Islendinga við Brandes og stefnu hans var upphaflega af pólitískum toga, enda höfðu þeir tvo síðustu áratugi 19. aldarinnar sömu afstöðu og hann til dönsku stjói’narinnar. Brandes hafði áður sýnt áhuga á íslenskri sérstöðu og menningu og jafn- vel látið þau orð falla á stúdentafundi, að hann vildi heldur vera Islendingur en Dani — þetta gat enginn Islendingur staðist.9 10 Eftir greinarnar í Politiken brást krosstré heimsmyndar margra landvarnarmanna, og eftir það voru þeir ekki leng- ur eins sterkir á svellinu gagnvart x’ómantískum hugmynd- um um þjóðernið og framtíðina; jafnvel trúarlegar hug- myndir gátu átt rétt á sér. 1 Ingólfi er varla að finna grein á móti kirkju eða krist- indómi. Hér gæti verið um að ræða meðvitaða stefnu af hálfu blaðsins, að forðast að blanda sér í mál, sem gætu 9- „Amagers lösrivelse", Politiken 16.12 og 22.12. 1906. '0. „Uppgjörið" fór fram í helstu blöðunum: Ingólfur 27.1. 1907, ÞjóS- ólfur 24.1. 1907, Reykjavík 25.1. 1907, Lögrétta 23.1. 1907, lsafold 26.1. 1907, ÞjóSviljinn 9.2. 1907. MORGUNN 1 n

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.