Morgunn - 01.12.1986, Síða 19
sambandi eru einkum athyglisverð þjóðerniseinkenni þess-
ara heimspekikenninga, sem greinilega eru skyldar guð-
spekinni, enda var Helgi félagi í Guðspekistúkunni í Reykja-
vík frá 1914 og hafði einnig fengist við sálarrannsóknir.
Eins og ýmsir aðrir, sem fyrst fengust við rannsóknir dular-
fullra fyrirbrigða, hafði Helgi verið undir áhrifum efnis-
hyggju og vísindahyggju 19. aldar og látið í Ijós efasemdir
og gagnrýni á hefðbundnar trúarkenningar kirkjunnar.
Þetta kom fram í þeim greinum, er hann skrifaði í blað það,
er stúdentar í Kaupmannahöfn gáfu út fyrir aldamót og
hét Sunnanfari. Flestir þeirra, er mest höfðu sig í frammi
í stjórnmálum af hálfu landvarnarmanna, töldust til þeirra
úr hópi menntamannna, er höfðu orðið fyrir mestum áhrif-
um frá raunsæisstefnunni og vísindalegri efnishyggju. Það
varð þeim, eins og öðrum, mikið áfall, er Brandes snerist
öndverður gegn íslenskri sjálfstæðisbaráttu og þjóðernis-
stefnu. Hann hæddist miskunnarlaust að henni í greinum í
Politiken í lok desember 1906.° Fylgi margra Islendinga við
Brandes og stefnu hans var upphaflega af pólitískum toga,
enda höfðu þeir tvo síðustu áratugi 19. aldarinnar sömu
afstöðu og hann til dönsku stjói’narinnar. Brandes hafði
áður sýnt áhuga á íslenskri sérstöðu og menningu og jafn-
vel látið þau orð falla á stúdentafundi, að hann vildi heldur
vera Islendingur en Dani — þetta gat enginn Islendingur
staðist.9 10
Eftir greinarnar í Politiken brást krosstré heimsmyndar
margra landvarnarmanna, og eftir það voru þeir ekki leng-
ur eins sterkir á svellinu gagnvart x’ómantískum hugmynd-
um um þjóðernið og framtíðina; jafnvel trúarlegar hug-
myndir gátu átt rétt á sér.
1 Ingólfi er varla að finna grein á móti kirkju eða krist-
indómi. Hér gæti verið um að ræða meðvitaða stefnu af
hálfu blaðsins, að forðast að blanda sér í mál, sem gætu
9- „Amagers lösrivelse", Politiken 16.12 og 22.12. 1906.
'0. „Uppgjörið" fór fram í helstu blöðunum: Ingólfur 27.1. 1907, ÞjóS-
ólfur 24.1. 1907, Reykjavík 25.1. 1907, Lögrétta 23.1. 1907, lsafold
26.1. 1907, ÞjóSviljinn 9.2. 1907.
MORGUNN 1 n