Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Page 22

Morgunn - 01.12.1986, Page 22
spíritisma og guðspeki með varúð.16 Þess má geta, að eftir að Valtýr lét af ritstjóm, birti Eimreiðin töluvert af efni úr fómm spíritista og sýndi því máli öllu mikla athygli. Sagt var, að Valtýr hefði bægt frá tímaritinu greinum and- stæðum spíritisma, fyrst og fremst af stjórnmálaástæðum.17 Allir forkólfar spíritismans voru sömumegin í stjórn- málaátökum þessara ára, átökum sem einkenndust almennt af afar illskeyttum blaðadeilum. Þar var ekki skirrst við að draga inn flest það, sem nýtilegt þótti til að klekkja á andstæðingnum. Því er það í sjálfu sér ekki undarlegt, að spíritisminn og afstaðan til sálarrannsóknanna yrði slíkt hitamál. Verður ekki séð, að annar aðilinn hafi átt meiri sök en hinn; báðir þóttust öruggir um réttmæti síns máls- staðar. Þegar um er að ræða djúpstæð atriði, sem snerta lífs- viðhorf og trúarskoðanir manna, má búast við, að mál- efnið setji sinn svip á viðhorf manna til stjórnmála. Það er ekki laust við, að foringjum Framsóknarflokksins eldri hafi verið svo farið. Spíritisminn var nátengdur trú þeirra á gildi einstaklingsins og trúnni á frelsi, umburðarlyndi og mannúð. Einnig er áberandi, að þeir tengdu málefnið trúnni á framfarir tækni og vísinda og þann nýja heim, sem þær boðuðu mannium. Ekki var unnt fyrir sannleiksleit- andi og heiðarlega blaðamenn að láta slíkt kyrrt liggja, og af þessum ástæðum átti Björn Jónsson erfitt með að sætta sig við að „fara í algert bindindi“ í þessu máli. Björn Jónsson segir i bréfi því til Valtýs Guðmundsson- ar, sem áður er til vitnað, þar sem hann réttlætir afskipti sín af málinu: Þekkingarvitund (ekki tóm trúarvitund) um annað líf gjörbreytir frá rótum allri afstöðu manna við öllum „álum“. Það gefur þeim nýja basis, þar á meðal okkar íslensku stórpólitík. Það veitir öðruvísi Rygrad í þeirri 16. Sjá EimreiSin XII 1906, bls. 229 og áfram, XXI 1915, bls. 227 og áfram og XXIII 1917, bls. 55. 17. Lögréíta 21.3. 1906. 20 MORGUNN

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.