Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Page 23

Morgunn - 01.12.1986, Page 23
baráttu sem annarri. Það spyrja færri þá en áður um, hvort mönnmn líkar betur eða verr sú eða sú fram- koma. Dóma heimskingja, hátt settra eða lágt í mann- félaginu, þessu máli viðvíkjandi, lætur maður sér í litlu rúmi liggja og breytir ekki um stefnu. ... Eg geng að því vísu, að þú munir kalla þetta ofstækiskennt, hátt eða í hljóði. En eg hefi aldrei verið rólegri í nokkru máli.18 Skúli Thoroddsen skrifar Þorsteini Erlingssyni í desem- ber 1905, en Þorsteinn var, að minnsta kosti þá, afhuga slíkum boðskap. ,,En sleppum þessu, enda stúdera ég nú um jólin bók 'Wallaces um spíritisma, og þar opnast víðsýni mikið og gjörist bjart yfir alheiminum.“1!’ Næsta ár skrifar hann í blað sitt Þjóðviljann: En hvað sem þessu líður, virðist þó ýmislegt benda á það, að spíritisminn geti ef til vill verið það þýðingar- mikla málefni, er leitt geti hið hulda í ljós, og hafi þá stórkostleg áhrif á siðferði manna og skoðun þeirra á lífinu, ef sannanir fást nægar.20 Það er greinilegt, að þessir menn eru í dauðaleit að nýj- um siðferðisgrundvelli íslenskra stjórnmála og félagsmála yfirleitt. Ekki var vanþörf á. Eins og áður segir, voru menn í pólitískum sviptingum þessara ára, jafnvel þeir er áður höfðu verði vinir og samherjar, reiðubúnir að svipta hver annan ærunni opinberlega. Björn og Skúli þekktu af eigin reynslu slík hjaðningavíg. Á þessum árum efldist „Danahatur" á Islandi, og not- færði stjórnarandstaðan sér það til pólitísks ávinnings, enda varð sú þjóðernishreyfing, sem greip um sig og birtist í Blaðamannaávarpinu, á Þingvallafundinum 1907 og í andstöðu gegn „Uppkastinu", til þess, að stjórnarskipti 18. Bréf Björns Jónssonar til Valtýs Guðmundssonar 4.2. 1906. 1 LaunráS og landsfe&ur, bls. 346. 19. Jón Guðnason, Skúli Thoroddsen II, Heimskríngla, Rvík 1974, bls. 386. 20. ÞjáSviljinn 20.10. 1906. morgunn 21

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.