Morgunn - 01.12.1986, Page 30
lega lífeðlisfræðingur, sem fékkst við sálarfræði, en fram-
lag hans til heimspeki (pragmatisminn) var einnig viður-
kennt. Hann nálgaðist fyrirbrigði spírtismans út frá því
heimspekilega viðhorfi sínu, að tilgátur, sem virtust ganga
í berhögg við þekkt vísindaleg lögmál, þyrftu ekki endilega
að vera rangar.7
Sem félagi í Breska sálarrannsóknafélaginu og einn af
stofnendum þess bandaríska tók James mikinn þátt í sál-
arrannsóknum og taldi skýringar spíritista þess virði að
athuga þær vandlega. Hann féllst á, að sum fyrirbrigðin
gætu benti til einhvers konar vitundarlífs eftir dauðann,
en taldi, að sannanir fyrir þvi ættu langt í land, áratugi
eða jafnvel öld.8 Guðmundur Finnbogason virðist hafa haft
svipaðar skoðanir og James. Hann þýddi nokkrar greinar
eftir hann og birti sumar þeirra í Skírni, meðan hann var
ritstjóri hans.9 10
Það er athyglisvert við skrif íslenskra spíritista, að þeir
leggja ekki eins mikla áherslu á þátt dáleiðslu, sefjunar og
dulvitundar og Myers gerði í bók sinni. Sambandið við anda
látinna verður hjá þeim oftast það, sem fyrst og síðast er
uppi á teningnum varðandi dularfull fyrirbrigði. Sálarrann-
sóknir þeirra eða fundir virðast beinast að því að fá and-
ana til þess ,,að sanna sig“. Enda mun það frá byrjun hafa
verið algengasti hvati að miðilsfundum að ná sambandi við
framliðna til þess að létta sorg og söknuð þeirra, er misst
höfðu náinn vin eða vandamann, svo þeir mættu sann-
færast um, að hinn látni lifði. Hugtakið ,,sönnun“ í þessu
samhengi er áhugavert, séð frá þekkingarfræðilegum og
félagssálfræðilegum forsendum, og hefur höfundur gert til-
7. Pál Sarlén op. cit., bls. 157.
8. Páll H. Jónsson, Úr Djúpadal aS Arnarhóli. Sagan um Hallgrím
Kristinsson, Bókaforlag Odds Björnssonar, Akureyri 1976, bls. 257.
9. Sjá aftanmálsgrein 10.
10. Á þetta benda Peter Berger og Thomas Luckmann i ritgerðinni
Secularization and Pluralism. 1 International Yearbooke of Sociology
of Religion II 1966, bls. 73—86. Þeir tala um „privatization" og
„subejectivization" í þessu sambandi.
28
MORGUNN