Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Side 35

Morgunn - 01.12.1986, Side 35
að svala trúarþörf sinni á fullkomnari og frjálsmannlegri hátt en átt hefur sér stað í margar aldaraðir.0 1 framhaldi þessarar greinar í næsta tölublaði Morgun- blaðsins tekur höfundur sérstaklega til umræðu spíritis- mann og guðspekina og telur framgang þeirra stafa af sann- leiksást og eilífðarþrá, sem sé eðlislæg íslensku þjóðinni, en hafi ekki fengið að njóta sín fyrr en nú.* 7 Svipaðar hugmyndir koma fram hjá forstjóra SlS, Hall- grími Kristinssyni, í bréfi skrifuðu í febrúar 1919 til bróð- ur hans, Jakobs Kristinssonar. Mönnum hefur aukist víðsýni og stórhugur þessi ófrið- arár, þótt við mikla örðugleika hafi verið að stríða. Samvinnumálin færast í aukana, fossar verða teknir í þjónustu iðnaðarins, samgöngur batna stórum, járn- brautir, máski flugvélar, koma innan skamms. Allt þetta er hugsað og talað, og eitthvað af því verður meira en orðin tóm. Síðast en ekki síst tel ég, að andlegu málun- um virðist ætla að þoka vel áfram. Spíritisma og guð- speki eykst fylgi, og margir yngri menn hyggjast að gangast fyrir umbótum menntamála yfir höfuð. Ný- stofnað Sálarrannsóknarfélag Islands og í það komnir 300 manns. .. .8 Niðurstaða af því, sem hér á undan er sagt, styður áður- nefnda kenningu um það, að hin dulræna þekking, sem oftast þróast sem afkimi samfélagsins, brjóti sér fai’veg að yfirborðinu á tímum örra breytinga í þjóðfélaginu og menningunni.9 Hið nýja Island reis í hjúpi dulhyggju, og hin dulræna reynsla hafði í sér fólginn nægan sköpunarmátt til þess að sannfæra forystumenn í þjóðlífinu um, að þeir sæju rétt. 6. Morgunblaðifi 11.10. 1919. 7• Ibid., 14.10. 1919. 8- Páll H. Jónsson, tJr Djúpadal aS Arnarhóli. Sagan um Hallgrím Kristinsson, Bókaforlag Odds Björnssonar, Akureyri 1976, bls. 257. 9- Sjá aftanmálsgrein 10. MORGUNN oo

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.