Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Page 44

Morgunn - 01.12.1986, Page 44
orkuna“, sem féll vel inn í vestrænar kenningar um lífsork- una.. Á sama tíma og Mesmer var uppi var annar maður, Luigi Galvani, ítalskur læknir, sem hélt því fram að lif- andi efni innihéldi orku. Galvani kallaði þessa orku „lífs- orku“ og átti þá við „eðlisrafmagn“ hlutana, vegna þess að hún sýndist frábrugðin eðlilegu rafmagni. Galvani tók eftir því að hún virtist hafa hæfileika til breytinga, þ. e. minnka eða aukast. Þessi lífsorka virtist vera í hringrás innan líffærastarfseminnar og viðhélst vegna flókins sam- bands við ,rafmagn“ umhverfisins. En því miður vegna þess að Galvani skorti nauðsynleg tæki, gat hann aðeins gefið upp tilveru rafsegulmagns innan líffærastarfseminnar — kenningu sem vísindin í dag hafa nýlega byrjað að kanna. „Odic“orka. 1 framhaldi af vinnu Mesners eyddi Karl Von Reichen- bach, þýskur iðnrekandi, efnafræðingur og uppgötvari „Creosote“ nærri þrjátíu árum í rannsókn á alheimlegri orku sem hann kallaði „Odic“orku. Rannsóknir Reinchen- bach hófust eftir að hann uppgötvaði að „sterkur segull sem getur lyft fimm kílóum og er hreyfður með líkama manns getur oft framkallað óvenjulegar tilfinningar, t. d. fyrir köldu lofti.“ Reichenbach uppgötvaði að fólk sem fann auðveldlega fyrir þessum áhrifum voru gjarnan ein- staklingar með raskað tilfinningalíf. Þeir sem sterkast fundu fyrir þessum áhrifum segulsins kallaði hann „þá til- finninganæmu". 1 kyrru umhverfi gátu þeir séð loga, neista, ljósgeisla og hvíta móðu hreyfast umhverfis póla segulsins. 1 myrkvuðu herbergi gátu þeir og séð svipuð fyrirbrigði í kringum fingurgóma fólks. 1845 gaf Reicheubach út bókina „Researches on Magnet- ism, Electricity, Heat and Light in their relation to the Vital Power“. Afrakstur þrjátíu ára rannsókna hans var almennt lítill gaumur gefinn og kenningin um „Odic“orkuna vakti ekki áhuga vísindamanna þeirra tíma. Kenningu Reichenbach er hægt að draga saman á eftirfarandi hátt: „Odic“orka er það sem er samkennt með öllu efni i al- 42 MORGUNN

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.