Morgunn - 01.12.1986, Page 45
heiminum, dreifing þess í tíma og rúmi er mismunandi og
ójöfn. Hún fyllir alheiminn og henni er ekki hægt að eyða
eða einangra (næsta ómögulegt að mæla hana). Hún á upp-
runa sinn frá uppsprettum eins og hita, mótstöðu og hljómi
rafsegulsmagns, ljósi plánetnanna, efnafræði og lífræði-
legri starfsemi plantna, dýra og sérstaklega manna. Þessi
orka er andstæð. Neikvæð orka gefur tilfinningu fyrir
kulda og er þægileg, en jákvæð orka gefur tilfinningu fyrir
hita og er óþægileg. Hluti er hægt að hlaða með slíkri
orku, aðeins með snertingu. Fyrir þeim sem eru næmir
er þessi orka lýsandi. Neikvæða orkan er blá en sú jákvæða
er gulrauð. Þessi orka er sérstaklega sýnileg nálægt segli.
Reichenbach trúði því að maðurinn væri hlaðinn þessari
orku. Hann tók eftir því að lýsandi orkan breyttist á
tuttugu og fjögurra stunda fresti, líkt og Ch’i orkan í kín-
verska puntakerfinu.
Árusvið.
Skömmu eftir dauða Reichenbach, uppgötvaði hinn
merki vísindamaður, Nikola Tesla, náttúru hins hreyfan-
lega segulsviðs. Æfisöguritari hans lýsir þessari uppgötv-
un þannig:
„Á þessu örlagaríka síðkveldi í febrúar i Búdapest 1882
var honum gefinn sýnin um hið hreyfaniega segulsvið í
hugljómum. Þar sá hann Alheiminn upplýstann og í öll-
um sínum margbreytileika, eins og sinfónía síbreytilegra
strauma. Fyrir hann var samhljómun Alheimsins leikin
eins og á skala x'afmagnstiðna sem tók yfir mikið svið. Á
einni af lægri nótunum var einföld nóta, sextíu sveiflur á
sekúndu breytilegs straums, og hinna hæstu nóta var
sýnilega Ijósið á tíðni billjóna sveiflna á sekúndu.“
Fyrsta uppskera Tesla úr þessu orkusviði var að hann
smíðaði fyrsta riðstraumsmótorinn, hátíðnileiðara og
straumbreyti. Tesla var líka fyrsti maðurinn til að fram-
kalla filmu og ljósmyndapappír með hátíðni.
Uppgötvanir Tesla urðu til þess að hi'aða möi’gum mik-
ilvægum uppgötvunum á sviði liffræðilegrar orku. Ein af
morgunn 40