Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Side 47

Morgunn - 01.12.1986, Side 47
aðskildum sviðum, „það fyrsta með dökkum köntum, hálf- ann sentimetra breitt, allt umhverfis líkamann. Þetta var eteriski tvífarinn. Utan við þetta var innri ára, þétt lag samhliða líkamanum, það var frá þremur upp í átta senti- metra á breidd, að síðustu kom ysta sviðið, sem hafði ekki neinar sérstaka lögun“. Til viðbótar sýndist áran breytast eftir kyni, aldri, hugarhæfileikum og heilsu þess sem rann- sakaður var. Litirnir voru mismunandi, en blái liturinn ráðandi. Líkt og Reicenbach voru uppgötvanir Kilners lítill gaumur gefinn af starfsbræðrum hans. Kilner hafði tekið eftir því að í hinu daufkennda mistri höfðu orðið breyting- ar á lögum og skírleika frá degi til dags og varð döggt við veikindi. Kilner fann upp nákvæmt kerfi læknisfræðilegrar greiningar á litum og samsetningu árubliks sjúklings. En því miður varð dráttur á að þetta yrði rannsakað frekar. Það varð ekki fyrr en við tilkomu Kirlian-ljósmyndatækn- innar sem tilraunir hófust að nýju á þessu sviði. N-geislar. Árið 1904 fékk prófessor Blondot við háskólann í Nancy, Frakklandi, Lecompte verðlaunin fyrir lýsingu hans á N- geislunum, áður óþekktum geislum sem bæði eru í lífrænu sem ólífrænu efni. Kenning Blondot var að segulmagn, efnaverkanir, sólin, plöntur, maðurinn og dýralíf, geislaði allt út svokölluðum N-geislum, einnig að málmar sem hafa ákveðið mólekúljafnvægi geisli einnig út slíkum geisl- um. 1 athugunum sínum á útgeislun mannslíkamans tók Blandot eftir því að aukin athygli og hugsun jók þessa út- geislun. Hann tók einnig eftir því að N-geislun jókst við birtu. Margar uppgötvanir Blondot svipaði mjög til kenn- inga Reicenbach um „Odic“ orkuna. I byrjun aldarinnar voru rannsóknir í geislun enn á byrjunarstigi, uppgötvanir Roentgens á X-geislunum og Curies á Radium, lofuðu spennandi viðfangsefni fyrir vestræn vísindi. Hvaða leyndardómar láu í leynum við hinar nýju uppgötvanir á sviði geislana, sem mynduðu bak- grunn fyrir hinum þekkta Alheimi? MORGUNN 45

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.