Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Page 55

Morgunn - 01.12.1986, Page 55
þess sem komist er í samband við og þekkt; það er það sem hið næma starfstæki verður vart við. Þetta er skiln- ingur sem leitar ætíð æ meir inn á hin andlegu eða innri svið. Þessar þrjár hliðar koma fram hjá manninum, hinu guðdómlegu lífsheild. Fyrst þekkir hann þær í sjálfum sér; síðan sér hann þær í öllu formi umhverfis síns og endan- lega lærist honum, með tilvísan til þessara hliða sjálfs sín, að tengja þetta samsvarandi hliðum annarra forma hinnar guðlegu birtingar. Rétt tengsl á milli forma leiðir til réttrar samhljómunar og réttrar aðlögunar á efnissvið- um lífsins. Rétt svörun við umhverfi leiðir af sér rétt tjá- skipti við sálarhliðina, dulda í sérhverju formi, sem mun framkalla hin réttu tengsli milli hinna ýmsu hluta hinnar innri taugauppbyggingar, sem til staðar er í öllum rikj- um náttúrunnar, neðar manninum sem ofar. Þetta er enn sem komið er næstum því óþekkt en hlýtur æ útbreiddari vi ðurkenningar. Þegar þetta hefur skilist af nógu mörgum og telst sann- að mun uppgötvast að í þessu er fólginn grundvöllur bræðralags og einingar. Eins og lifrin, hjartað, lungun, maginn og önnur líffæri líkamans eiga sér sína aðskildu tilvist og starfsemi, en eru um leið ein heild sem tengd er með tilstilli taugakerfisins, sem liggur um allan líkam- ann, þá mun koma í ljós að í heiminum eru lífsheildir eins og ríki náttúrunnar sem eiga sitt aðskilda líf og starfsemi en um leið eru samstillt og gagntengd af viðamiklu skyn- kerfi sem stundum er kallað sál allra hluta, Anima Mundi. Vitundin sem að allt hvílir á. Þegar verið er að fjaila um þrenninguna sem svo oft eru notuð þegar talað er um guðdóminn, eins og andi, sál og líkami, — lif, vitund og form, — þá er rétt að muna eftir því að þær eiga við skilning á hinu eina lífi. Þegar mönnum verður þetta al- uiennt ljóst, þá geta fleiri gagnkvæm tengsl myndast á milli manna og hópa ólíkra skoðana. En þegar fjallað er um heimspekileg atriði og óhlutlæg, þegar að efnið sem skrifa á um, er óskilgreinanlegt, þá er morgunn S 9

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.