Morgunn - 01.12.1986, Qupperneq 58
greining á. Aftur þeir sem meiri áhuga hafa á háspeki-
legri umfjöllun og á sálarlífinu — hugsa um þetta sem
líf — sem eiginleika, um hópvilja eða afl, hópsamræmingu
eða kærleiksvisku og um hópþekkingu. Heildina tala þeir
um með hinu almenna nafni Bræðralag.
Orðin lifrænt og ólífrænt eiga stóran þátt í þeim rugl-
ingi og þeim skarpa mismun sem í dag er að finna í hug-
um fólks á milli líkama og anda, á milli lífs og forms. Þetta
hefur leitt til tregðu á því að viðurkenna sama grundvallar-
þætti í eðli beggja. Af meirihlutanum er heimurinn sem
við lifum í álitinn sem raunverulega efnisþéttur og áþreif-
anlegur, en samt búinn einhverri dularfullri orku (falinni
innan hans) er framkallar hreyfingu, starfsemi og breyt-
ingu. Þetta er auðvitað í grófum dráttum en það nægir
til heildaryfirlits hins óskyniborna hugarfars.
Vísindamenn í dag eru að meirihluta uppteknir við sam-
setningar og tengsl, við gerð formanna og þeirrar starf-
semi er fram fer í hinum samsettu hlutum formanna, sam-
spili þeirra og skyldleika. Efnin, frumefnin, starfsemi
þeirra og hlutverk, hin sameiginlegu starfsvið þeirra þar
sem þau mynda formin í ríkjum náttúrunnar. Þetta eru
rannsóknarefni þeirra nú.
Eðli smáeindarinnar, sameindanna og frumanna, starf-
semi þeirra, eiginleikar orkubirtingu þeirra og hinar ýmsu
gerðir starfsviða, verða vettvangur þeirra síðar. Lausn
vandamálsins um gerð og eðli kraftanna, staðbundinna eða
ekki í hinum mismunandi formum náttúrunnar eða hinum
efnisbundna heims kallar á umfjöllun hinna færustu huga
hins hugsandi heims. Samt reynist ósvarað spurningum á
borð við, hvað er líf? eða hvað er orka? eða hver á fram-
gangur þess að verða? og hvert er eðli vitundarinnar?
Úrlausnarefnið af hverju og hvers vegna, er álitið árang-
urslaust og heimspekilegt og næstum því óleysandi.
Einn af nauðsynlegum þáttum vísindamannsins í dag er
sá, að leitast við að hugsa með hugarfari hins eina raun-
veruleika sem er orkan sjálf og ekkert annað. Þess vegna
er vert að leggja áherslu á þá staðreynd í umf jöllun okk-
56
MORGUNN