Morgunn - 01.12.1986, Blaðsíða 59
ar á þessu torskilda efni að orðin andi og orka eru sömu
merkingar og víxlanleg. Aðeins með skilningi þessa at-
riða getum við náð sættum milli vísinda og trúarbragða
og komist að sönnum skilningi á þeim heimi virkra fyrir-
bæra sem umlykur okkur og við hrærumst í.
Samt sem áður er með hreinni skynsemi og í gegnum
rétta verkun innsæisins hægt að leysa þessi vandamál og
svara þessum spurningum. Lausn þeirra er ein af hinum
venjulegu opinberunum og kunnáttu sem samfara er vit-
undanþenslu mannsins. Eina leiðin til þess að við getum
metið þá rás er á sér stað við þenslu vitundar í manninum,
er að athuga og nema tengsl huga og heila og veita því
eftirtekt hvað fylgir því þegar að heilinn verður hið
greinda starfstæki hugans; síðan að gera athuganir á
tengslum sálarinnar við hugann og þess hvers það leiðir
til þegar manninum er stjórnað af sál sinni og hann not-
ar síðan hugann til stjórnunar efnissviðsgerða sinna fyrir
tilstilli heilans. í þessu þrennu — sál, hugur og heili —
höfum við svörunina og lykilinn að skilningi á anda, sál
og líkama og sameiginlegri starfsemi þeirra.
Hinir einu sönnu líffræðingar eru þeir sem hafa skiln-
ing á lífi og tilgangi þess sem gerir það að verkum að þeir
sameina sig svo lífslögmálinu að þeir hugsa og tala með
merkingum orku og afleiðinga hennar. Allar gerðir þeirra,
í tengslum við helgivald plánetunnar, grundvallast á fáum
grunnforskriftum sem fjalla um líf eins og það gefur sig
til kynna í gegnum sínar þrjár sundurgreiningar eða hlið-
ar: — orka — afl — efni.
Það ber hér að hafa í huga að aðeins með skilningi á
sjálfum sér getur maðurinn náð skilningi á því sem er sú
samanlagða útkoma er við köllum Guð. Þetta er óefaður
sannleikur og dulspekilegur grunnur, sem ef byggt er á,
leiðir til opinberunnar og gerir hinn núverandi „óþekkta
Huð“, að viðurkenndum raunveruleika.
Sigurbjörn Svavarsson tók saman.
MORGUNN
57