Morgunn - 01.12.1986, Side 71
Það, sem mér þótti merkilegast á þessum fundi var, að
konan mín Guðný M. Björnsdóttir, sagði að ég væri með
giftingarhringinn sinn og sagðist hún segja þetta til þess
að sanna það, að þetta væri hún, en ekki önnur persóna.
Þetta kom mér alveg á óvart. Sannleikurinn var sá, að á
þessari stundu mundi ég ekkert eftir því, að ég var með
giftingarhring Guðnýjar, en ekki með minn giftingarhring
eins og eðlilegast hefði verið. Þannig er mál með vexti, að
fyrir möi’gum ái'um var minn giftingarhringur orðinn
það laus á baugfingri, að ég varð að láta taka bút úr hon-
um, en þann bút lét ég setja í hring Guðnýjar. Útkoman
varð sú, að minn hringur varð ofþi’öngur, en hringur Guð-
nýjar mátulegur, enda hef ég síðan haft þann hring á hendi,
en ekki minn giftingai’hring. Ekki hefði ég haft orð á
þessu við neinn og það var alls ekki í mínum huga á þess-
ari stundu. Á þessu er engin eðlileg skýring efnishyggju
manna. Það er útilokað, að enski miðillinn hafi vitað nokk-
uð um mig, þar sem hún hafði aldrei áður til Islands kom-
ið og skildi ekkert orð í íslensku. Þá er rétt að taka það
fram, að Auður Hafsteinsdóttir var með öllu ókunnug
mínum málum.
Á miðilsfundum hér heima með íslenskum miðlum, hefur
þvi oft verið haldið fi’am, að miðill geti lesið hugsanir
viðstaddra og þar af leiðandi sé ekkert að marka það, sem
fram komi áslík um fundum. 1 þessu tilfelli er útilokað
að um slíkt sé að ræða eins og ég hef áður bent á. Sjálfur
er ég sannfærður um það, að konan mín, Guðný M. Bjöi’ns-
dóttii’, var þai’na á ferð, enda sannaði hún það á eftir-
minnilegan hátt.
Hugmyndaheimur fólks hefur verið að breytast frá
örófi alda, frá öld til aldar. Ef litið er á sögu mannsins frá
upphafi, er ótrúlega stutt síðan, að menn trúðu því, að
jörðin væri flöt. Sennilega er þekking okkar í eðlis- og
efnafræði á byrjunarstigi og að þeir, sem eiga eftir að
vaxa úr gi'asi eftir eina eða tvær aldir, munu telja okkur,
sem í dag erum ofar moldu, fákunnandi og þekkingar-
snauða. Oi'ka alheimsins er okkur lítt kunn og verður það
morgunn
69