Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Page 77

Morgunn - 01.12.1986, Page 77
önnum kafinn. Ég sá greinilega andlit hans. Hann var mjög líkur þeim myndum, sem ég hef séð af honum. Hann var með yfirvaraskegg og augun voru hvöss og skein úr þeim góðvildin. Þessi sýn stóð nokkra stund en svo hvarf hún. En nú var verkurinn horfinn úr höfðinu. Og síðan fann ég ekki fyrir ,,mygreninu“ í margar vikur næst á eftir. 3. Moontrail (Mánaslóði). Daginn eftir, sem var mánudagur, lögðum við af stað frá Laugalandi, og var ferðinni heitið, þennan dag, út með Eyjafirði, um Dalvík og Ólafsfjörð til Sigluf jarðar, þar sem við ætluuðum að gista. Er við vorum skammt komin út fyrir Hörgá birtist mér Moontrail skyndilega. Ég vissi strax að þetta var hann. Ég hafði líka séð mynd af honum á Laugalandi, þótt reyndar væri sú mynd algjörlega ósambærileg við þá dýrðlegu veru, sem nú bar mér fyrir augu. Þetta er sú fegursta sýn, sem ég hef nokkru sinni séð. Hann var miklu fegurri og guð- legri en nokkur maður getur orðið hér á jörð. Það var eins og geislaljóma stafaði af höfði hans og augun voru skær og björt langt umfram það, sem nokkur jarðneskur maður hefur til að bera. Það var bókstaflega eins og frá þeim legði birtugeisla sem ekki er hægt að lýsa með orðum. Hann brosti til mín og frá honum lagði svo mikla hlýju og kær- leika, að ég varð frá mér numinn. Það var eins og ox-ku- sti’aumar gengju út frá honum, og ég bókstaflega fylltist nýjum krafti og þrótti, langt umfram það, er ég áður hef fundið. Það var eins og ég væri yfirskyggð æðri mætti, eins og ég sjálf fengi þátt í hinum guðdómlegu eiginleik- um þessarar háþi’óuðu veru, sem nú hafði birst mér hér i öllum sínum ljóma. Mér fannst ég mettast lækningamætti, svo að nú gæti ég læknað líkamleg mein annai'ra, og ég fylltist löngun til, að sú ósk mætti í’ætast, að ég fengi þá náð, sem ég hafði alltaf haft löngun til. Þessi sýn stóð ekki lengi, og tilfinningin fyi'ir nærvex’u þessarar vei’u hvarf mér. morgunn 75

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.