Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Side 78

Morgunn - 01.12.1986, Side 78
Meðan á þessu stóð vorum við á ferð, eins og áður sagði, á veginum utan við Hörgá. Maðurinn minn ók og vissi auðvitað ekki, hvað fyrir mig bar. Þegar guðlegar verur ná sambandi við mann, þá verður staður eða stund ekki til hindrunar, engar ytri aðstæður verða til að varna þeim leiðarinnar til að birtast þeim, sem á annað borð geta tekið á móti þeim áhrifum, sem til þeirra er beint. Það er eins og einmitt þetta andartak verði að notast, annars gefst e. t. v. ekkert slikt tækifæri, hvorki í bráð né lengd. Mannleg opnun fyrir móttöku hinna æðri áhrifa eru svo sjaidgæf. Hjá sumum verður slíkt aðeins einu sinni á ævinni, sumum aldrei, a. m. k. ekki svo skýrt að eftir sé tekið. Eftir að þessi dásamlega vitrun var horfin eða liðin úr huga mér, bað ég Ingvar að stansa. Fórum við út úr bíln- um, og fundum okkur grasi gróna brekku,, þar sem ég sagði honum hvað fyrir mig hafði borið og tók hann þann- ig á sinn hátt, þátt í þessari óviðjafnanlegu reynslu minni. Ferðinni héldum við svo áfram, eins og ráð hafði verið fyrir gert, gistum á Siglufirði og þar næst á Blönduósi í leiðinni, og komum svo heim á þriðja deg. 4. Aukinn lífsþróttur. En í margar vikur bjó ég að áhrifunum, sem ég hafði notið, þessa eftirminnilegu stund, sem ég hef reynt að lýsa hér að framan. Ég var öflugri en áður og mér fannst, eins og ég hefði lækningamátt til að bera, eins og ég ætti þess kost að lækna líkamleg mein annarra, sem eitthvað amaði að. Og ég hafði til þess mikla löngun. Mig langaði til að lækna með höndum mínum, en þegar til kom, þá brast mig kjark, því mér fannst þessir vinir mínir og kunningjar, sem til greina komu, vera frábitnir því, að nokkrar slíkar lækn- ingar gætu gerst fyrir mitt tilstiili. Þessi andlegi kraftur smáhvarf mér. En enn er ég þakk- lát fyrr að hafa orðið þess aðnjótandi, að fá að sjá þessa geislandi veru og að magnast af þeim guðdómlegu áhrif- um, sem frá henni streymdu. 76 MORGUNN

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.