Morgunn - 01.12.1986, Qupperneq 79
5. Lækning og aukin magnan.
Þetta var frásögn Aðalheiðar um athyglisverða sýn áður
en hún fór til Akureyrar þetta umrædda sumar og um það,
hversu allt kom heim og saman við veruleikann, þegar
þangað var komið og hún sá Jón Sigurgeirsson og mynd
af konu hans. Þá er og ekki síður athyglisvert hvernig
Moontrail, háþroskavera sú, sem Hambling hjónin voru í
sambandi við, birtist henni og á þann hátt, að lækning
fylgdi og mikil andleg og líkamleg magnan, sem hélst um
alllangt skeið eftir þetta. Hér hefur orka frá háþroskaveru
í öðrum stað alheims, náð að koma sér við. Þannig er að
jafnaði leið ,,andlegra“ lækninga ig annarar orkumögnun-
ar. Hún brýtur sér leið frá lengra komnum lifendum í ríki
alheimsins, og tekst stundum að koma fram hjálpandi áhrif-
u msínum, svo framarlega sem skilyrði til móttöku eru
fyrir hendi.
Nú segir frá öðru dæmi, þar sem rætt er um sérstakt
atvik, sem gerðist í fjarlægð. Og enn er það Aðalheiður
sem segir frá.
IV. Bíll losnar úr ófæru. — Sýn
1. Ferð Sigurðar og vina hans.
Þegar Sigurður, sonur minn (f. 1942), var unglingur, fór
hann oft með nánum félögum sínum, upp um fjöll, á lélegum
bíl, sem hann átti. Lentu þeir þá stundum í ýmsum ófærum
og erfiðleikum.
Eitt sinn, er hann var um það bil sautján eða átján ára,
fór hann á þessum bíl ásamt Agnari frænda sínum og öðr-
um pilti, sem var góður kunningi þeirra beggja. Þetta mun
hafa verið á laugardagseftirmiðdegi og vissi ég ekki hvert
ferðinni var heitið, enda réðst það oftast á leiðinni, hvert
MOHGUNN
77