Útvarpstíðindi - 16.03.1942, Blaðsíða 8

Útvarpstíðindi - 16.03.1942, Blaðsíða 8
Rudolph Baumbach: ÓMINNISDRYKKURINN Niðurlag. Aumingja Heinz svaf alla nóttina draumalaust, þar til nepjan vakti hann um aftureldingu. En undir eins stóð öll hans sorg fyrir hugarsjónum hans, og glotti að honum eins og hinn illi andi. ,,Ó, ef ég gæti gleymt“, hljóðaði hann. ,,Ef ég aðeins gæti gleymt! Það er til uppsprettulind, og hverjum þeim, sem drekkur úr henni, hverfur allt hið umliðna úr minni. Hver vill vísa mér veginn til lindarinnar“. ,,Hér er sá“, heyrði hann sagt rétt hjá sér. ,,Eg er vel kunnugur drykk þeim, sem orsakar óminnið, og skal með glöðu geði segja þér allt, sem ég veit um hann“. Heinz leit upp, og sá að frammi fyr- ir sér stóð unglingur í svörtum fata- druslum. Tærnar gægðust forvitnislega út um skógarmana hans. Hann kvaðst vera farandsveinn, og hélt hann áfram ræðu sinni á þessa leið : ,,Drykkur sá, sem orsakar óminnið heitir Lethe*), og hefir upptök í Grikk- landi. Þangað verðurðu að ferðast En viljir þú ná hinu sama takmarki með hægra móti, þá kom þú með mér til Vínberja-veitingahússins. Það er ekki langt á burtu héðan. Þar mun veitinga- konan gefa þér að bragða óminnis- drykkinn, svo framarlega sem pyngj- an þín er þyngri en mín“. Þannig mælti farandsveinninn. *) A í undirheimum, sm sálir hinna framliðnu drukku úr, til að gleyma harmkvælum jarðlífs- ins _ óminniselfan. — ÞýÓ. Heinz reis á fætur og fylgdi honum eftir til veitingahússins í skóginum. Þar drukku þeir saman allan daginn og hálfa nóttina. Um miðbik nætur lágu þeir rólegir á bekknum. Heinz hafði gleymt öllu, sem kvaldi hann og angr- aði. En í dögun þyrmdi sorginni yfir hann á ný og þar að auki hafði hann fengið höfuðverk. Hann borgaði reikn- ing sinn og félaga síns, kvaddi farand- sveininn í snatri og hélt áfram leiðar sinnar. ,,Ó, hver getur gleymt!“ æpti hann og barði hnefanum á enni sér. ,,Eg verð að finna lindina, því annars missi ég vitið“. Rétt hjá veginum var hálfvisinn víði- runnur, og þar sat hrafn, sem sneri höfðinu að hinum einmanalega vegfar- anda og horfði á hann með forvitnis- svip. ,,Vitri fugl !“ sagði skógarbúinn. ,,Þú veist allt, sem skeður á jörðunni; segi mér hvar óminnislindin rennur“. ,,Já, það vildi ég nú líka vita“, svar- aði hrafninn, ,,því þá myndi ég sjálfur drekka af henni. Eg vissi um músa- hreiður með sjö spikuðum ungum í, en í gærdag, þegar ég fór að sjá hvernig blessuðum litlu skepnunum liði, þá var mörðurinn búinn að taka músa- hreiðrið frá mér, og ekki agnarögn skil- in eftir. Og hvert sem ég fer síðan þá get ég um ekkert annað hugsað en tap mitt. Hver þekkir óminnisdrykkinn ? Bíðum nú hægir. Farðu bara til gömlu skógarkonunnar, hún er vitrari en fólk er flest og veit kannske um óminnis- drykkinn“. Og hrafninn vísaði veiði- manninum til gömlu skógarkonunnar. Gamla konan var heima. Hún sat og spann fyrir framan litla húsið sitt, og Framhald á bls. 252 236 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.