Útvarpstíðindi - 16.03.1942, Blaðsíða 10
Steingrímur Steinþórsson.
Bændavika
Búnaðarfélagsins
Víhan 22-28 marz 1942
Steingrímur búnaöarmálastjóri er
önnum kafinn, þegar ég hitti hann í
Búnaðarfélagshúsinu, til þess að spyrja
hann um fyrirkomulag næstu bænda-
viku í útvarpinu. Auk umsvifamikilla
starfa ' í Búnaðarfélaginu, situr Stein-
grímur nú á tveimur þingum, Alþingi
og Búnaðarþinginu.
— Þetta er í þriðja sinn, sem við efn-
um til slíkrar ,útvarpsviku“, og verður
hún að þessu sinni frá 23. marz til 29.
marz, segir búnaðarmálastjóri. — Alls
verða flutt um 25 erindi, fræðilegs efn-
is, en auk þess höfum við kvöldvöku,
þar sem tekið verður upp léttara hjal.
Þessar bændavikur hafa gefizt vel, ég
hef fengið mörg bréf, þar sem mér er
tjáð, að á þetta sé hlýtt með athygli
viða um land. Við höfum stundum áð-
ur haft erindi eða erindaflokka í út-
varpinu um ýmis efni, en óreglulega.
IVIeð þessu fyrirkomulagi hygg ég að
betur notist sá fróðleikur og þær leið-
beiningar, sem fram koma. Sums stað-
ar kemur fólk beinlínis saman til þess
að hlusta, þegar um samfellda erinda-
röð er að ræða. Bent hefur verið á, að
hagnýtt geti verið að gefa einhver er-
indin út.
— Er ekki hugsanlegt, að félag ykk-
ar efni til hliðstæðra kvölda fyrir kon-
ur í sveitum og æskuna, sem er í dreif-
býlinu ?
— Jú, um þetta höfum við hugsað,
þó að ekki komi til framkvæmda nú.
Það er hugsanlegt, að við leitum sam-
vinnu við útvarpið um kvennakvöld
eða jafnvel kvennaviku, einnig hefur