Bankablaðið - 01.12.1942, Síða 34

Bankablaðið - 01.12.1942, Síða 34
6 BANKABLAÐIÐ stundað lesturinn betur, ef hann fengi einhvern ókunnugan, helzt íslending sér til eftirlits og hvatningar. í þessum til- gangi leitaði hann uppá Garð, og sá þar af tilviljun nöfn nokkurra stúdenta, sem voru að sækja um að fá eintak af doktorsbók að láni, og þar á meðal stóð „Bjarni Jónsson, stud. juris.“ leitaði hann síðan Bjarna uppi, tókust þegar samningar með þeim um þetta, og ynti Bjarni þetta starf svo vel af hendi, að þeir voru vinir alla tíð upp- frá því. Það er mjög líklegt að hin kunna vinátta Poulsens, (sem síðar varð ritstjóri Berlinske Tidende) til íslend- inga hafi skapast af þessari viðkynn- ingu. Hinsvegar þykist ég mega fullyrða að áhugi B. J. fyrir íslandsmálum hafi mótað skapferli hans sjálfs. Ræð ég þetta af einlægri þátttöku hans í kjör- um annara og óvenjulega ríku umhyggju um hag þjóðfélagsins í heild, ennfrem- ur því, hve laus hann er við alla sér- drægni. Þetta hefir líka, eins og kunn- ugt er, einkennt suma þá menn, sem horfðu heim um þessar mundir fullir eldmóði og umbótavilja. En áhrifin af góðu fordæmi verða hvorki mæld né vegin, hins vegar má fullyrða að þau eru virk og sístarfandi, enda myndi þjóðfélnginu ennþá ver farnast, ef allir einstaklingar þess væru haldnir valda og auðsöfnunarfíkn svo magnaðri að þeir vildu allt í söl- urnar leggja til þess að ná settu marki. Bjarni Jónsson, var útibússtjóri á Akureyri í 25 ár. Frá 20. ágúst 1910 til 30. ágúst 1935. Hinn 1. október sama ár byrjaði hann starf sitt í bankanum hér. Hann hefir stöðugt aukið á vin- sældir sínar meðal starfsfólksins, enda var hann kjörinn formaður starfs- mannafélagsins árið 1938—1939 og með stjórnandi 1939. Hann tók upp þá ný- breytni að færa skrá, sem hefir að geyma ættfræðilegar upplýsingar ög aðrar heimildir um félaga starfsmanna- félagsins. Fyrir þetta og framkomu alla hygg ég að starfsfólkið beri til hans hlýjan hug. Hinn 24. maí s. 1. var fjölskylda Bjarna, og nánustu vandamenn saman- komin á heimili þeirra hjóna í Útvegs- bankanum, til þess að halda sjötugs- afmælið hátíðlegt. Við þetta tækifæri kom það í ljós, að hann átti einnig hér .í Reykjavík, fjölda heimilisvina og vel- unnara um land allt, enda hefir frú Sólveig kona hans, stjórnað heimilinu af slíkri rausn, að ég heyrði til þess tekið löngu áður en ég kynntist því sjálfur. En til viðbótar við allar þær heillaóskir, sem fram voru bornar í til- efni af þessum afmælisdegi vil ég bera fram þá ósk, að þetta bágstadda þjóð- félag megi eignast fleiri slíka syni. Vetrardagur. í Englandi hafa 55% af starfsmönn- um bankanna verið kvaddir til herþjón- ustu. Norska verzlunarráðuneijtið hefir skipað nefnd til þess að hafa eftirlit með öllum viðskiptum á kaupþingi Oslóborgar. Gengi á hlutabréfum banka-, vátryggingar-, iðnaðar- og út- gerðarfélaga má ekki breytast um meir en 5% frá degi til dags og skuldabréfa um 1%. Enskir bankar hafa lagt niður 1000 af 9000 útibúum og er búist við að þeim verði enn fækkað með ófriður helzt.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Bankablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.