Bankablaðið - 01.12.1942, Qupperneq 39
BANKABLAÐIÐ
II
Þeir gátu gefið sig óskifta að starfi sínu.
— Ég tel, að launa beri forstjóra fyrir-
tækja ríkisins vel, en forðast öll auka-
fríðindi og einnig það, sem nú er mjög
algengt, að hlaða á þessa menn auka-
verkum.
Venjulega var allmikið að gera í
bankanum nokkra mánuði, vor og haust,
hér um bil hálft árið, eða vel það, en
lítið frá því um miðjan janúar fram í
marzlok og svo um hásumarið. — Kom
það sér vel vegna sumarleyfa, sem þá
voru 10 dagar virkir. Nú er öldin önn-
ur, þegar aldrei er hlé og síst að sumri
til. Ekki var leyft að fara úr bankan-
um til matar um hádegið, menn unnu
frá 9,30—4 en höfðu með sér bita, er
þeir borðuðu í bankanum. Ekki var
vinnu lokið fyr á laugardögum en aðra
virka daga. —
Frá þessum fyrstu dögum er mér
minnisstæðastur bókarinn, Richard
Torfason, hinn fríði og glæsilegi atorku-
maður með gott og viðkvæmt hjarta
undir nokkuð harðri skel. Einnig
minnist ég Hannesar Blöndals skálds,
hins glaða og góða manns — sem
samt ól í huga sínum þrá, sem
hann fékk ekki fullkomlega upp-
fyllta. — Báðir eru nú þessir menn
komnir undir græna torfu, — einnig
Guðmundur Jónsson dyravörður, sem
alltaf var eins og barn fram til elli og
þekkti ekki svik né pretti. — Allra
minna starfsfélaga frá þessu fyrsta ári
mínu í bankanum minnist ég nú með
þakklæti og hlýjum huga og óska þess
að hinir dánu fái frið en ,,hinir líkn
sem lifa“.
Þorsteinn Jónsson.
Kjörfundur F. S. Ú. í.
Kjörfundur F. S. Ú. í. var haldinn
5. des. síðastliðinn. Voru kjörnir níu
félagsmenn til þess að vera í kjöri við
kosningu stjórnar á aðalfundi félagsins
21. jan. n.k. Þessir hlutu kosningu:
Adolf Björnsson,
Andrés Ásmundsson,
Baldur Sveinsson,
Bjarni Guðbjörnsson,
Henrik Thorarensen,
Hjálmar Bjarnason,
Kári Sigurðsson,
Sverrir Thoroddsen,
Þormóður Ögmundsson.
1 kjörstjórn voru kosnir Guðjón Hall-
dórsson, Gunnar Guðmundsson og
Bjarni Sighvatsson.
Nýtt starfsfólk í Útvegsb. íslands:
Kristjana Kristjánsdóttir,
Margrét Ragnarsdóttir,
Margrét Heiðdal,
Ragnheiður Jóhannsdóttir,
Þorbjörg Tryggvadóttir,
Gunnar Davíðsson,
Haraldur Björnsson,
Ársæll Magnússon.
Gunnlaugur Björnson, sem undanfar-
in ár hefir starfað í Landsbanka ís-
lands, réðst til Útvegsbankans 1. okt. s.l.
Böövar Kvaran hætti störfum í Út-
vegsbanka Islands h.f. á síðastliðnu
hausti og tók við forstjórn verksmiðj-
unnar Juno h.f.
J'úlíus Jónsson, settur gjaldkeri á
Akureyri, hefir verið skipaður í starfið.