Bankablaðið - 01.12.1942, Blaðsíða 54
26
BANKABLAÐIÐ
kl. 2 e. h. á kaupþingsdögum. Þegar
hann nefnir ákveðið verðbréf, skulu
kaupþingsfélagar nefna það gengi, sem
þeir vilja kaupa eða selja á. Tilboðin
miðast við ákveðinn hlut af verðbréf-
um, o g setur framkvæmdarstjórnin
reglur um, hvað stór hann skuli vera
fyrir hvert einstakt verðbréf, sem verzl-
að er með á kaupþinginu. Þegar tilboð-
in falla saman, segir kaupþingsstjóri
að svo sé, og nefnir nöfn aðilanna, en
aðstoðarmaður hans skal um leið skrá
nöfn þeirra, verðbréfið og það gengi,
sem viðskipti fóru fram við. Þegar
viðskipti komast ekki lengur á, eða
komist engin viðskipti á, skal skráð
hæsta kauptilboð og lægsta sölutilboð,
sem nefnt hefir verið (lokagengi).
10. gr. Að loknu uppboðinu fara
fram frjáls viðskipti milli kaupþings-
félaga, en tilkynna skulu þeir kaup-
þingsstjóra það gengi, er viðskiptin
gerast við.
11. gr. Að loknu uppboði því, sem
um ræðir í 9. gr., er hæsta og lægsta
gengið, sem skráð hefir verið í hverju
verðbréfi, gjört kunnugt, og sömuleiðis
lokagengið. Þó getur kaupþingsstjóri
ákveðið að lokagengi skuli ekki birt, ef
mikill munur er á kaup- og sölutilboð-
um. Kaupþingsstjóri tekur ákvörðun
um það, hvort gera skuli kunnugt gengi
það, sem skráð er í frjálsu viðskipt-
unum skv. 10. gr.
12. gr. Afhending verðbréfa og
greiðsla andvirðisins fara fram í síð-
asta lagi fyrir kl. 14 daginn eftir að
viðskipti áttu sér stað, og skal kaup-
andi sækja bréfin til seljanda. Við-
skiptaaðilar geta þó komið sér saman
um lengri frest.
13. gr. Ef ástæða verður til, getur
framkvæmdarstjórnin ákveðið, að við-
skipti á kaupþinginu skuli fara fram
eins og segir í 14.—16. gr. hér á eftir.
Verði þessi heimild notuð, skal aðeins
halda uppboð samkvæmt 9. gr. þá kaup-
þingsdaga, er þess er óskað af minnst
2 kaupþingsfélögum. Tilmæli um það
skulu borin fram við kaupþingsstjóra
fyrir kl. 12 á hádegi á kaupþingsdög-
um, og lætur hann, ef til kemur, boð
út ganga til kaupþingsfélaga um, að
uppboð verði haldið samdægurs kl. 2.
14. gr. Kaupþingsfélagi skal senda
kaupþingsstjóra tilboð í lokuðu um-
slagi, þar sem tekið sé fram, þannig
að ekki verði um villst, hvaða bréf hann
vill kaupa eða selja, hversu mikið,
hvort hann vill kaupa eða selja, hvert
sem gengið kann að reynast, eða hvort
tilboðið er bundið því skilyrði, að geng-
ið verði ekki hærra eða lægra en til-
greint sé. Framkvæmdarstjórn bankans
lætur gera eyðublcð undir tilboðin. I
tilboðinu má ekkert vera, er gefi til
kynna, frá hverjum það sé, heldur skal
samrit tilboðsins, undirritað af kaup-
þingsfélaganum, fylgja í öðru lokuðu
umslagi. Öll tilboð skulu komin í hend-
ur kaupþingsstjóra eða starfsmanna
kaupþingsins í síðasta lagi kl. 10 kaup-
þingsdaginn. Skal kvittað fyrir mót-
töku tilboðsins og jafnfram tilgreint,
á hvaða tíma það hafi verið afhent.
15. gr. Kl. 10 f. h. á kaupþingsdög-
um opnar kaupþingsstjóri öll þau til-
boðsbréf, sem borist. hafa, að viðstödd-
um tveim mönnum, öðrum tilnefndum
af Viðskiptamálaráðuneytinu, en hin-
um kjörnum af kaupþingsfélögunum.
Athuga þeir við hvaða gengi mest við-
skipti með hverja verðbréfategund geti
átt sér stað, og skrá það gengi á þeirri
verðbréfategund. Síðan ákveða þeir,
hvaða sölutilboðum og kauptilboðum