Bankablaðið - 01.12.1942, Side 36

Bankablaðið - 01.12.1942, Side 36
8 Byggingarmálið. 1 janúar síðastliðnum sendi sam- bandsstjórn borgarstjóranum í Reykja- vík bréf, þar sem farið er fram á, að bærinn láti starfsmönnum bankanna í té hagkvæmar byggingarlóðir og lögð áherzla á, og í því sambandi vitnað í fyrri málaleitun, sem ekki hafði feng- izt svar við, að bankamönnum sé það sem fyrr mjög hugleikið að lóðir til ' æntanlegra bankamannabústaða fáist t svæði því á Melunum, er liggur vest- 'i ^uðurgötu, meðfram Hringbraut að sunnan. Svar við þessu bréfi barst stjórninni frá borgarstjóra seint í sama mánuði, þar sem hann segir, að að svo stöddu geti bæjarráð ekki orðið við umsókn bankamanna um nefndar lóðir á Mel- unum, vestan Suðurgötu og meðfram Hringbraut, þar sem skipulag á þessu svæði hafi enn ekki verið ákveðið, en bæjarráð sé því hlynnt að bankamönn- um verði ætlaðar byggingarlóðir á góð- um stað og að málinu hafi að öðru leyti verið vísað til skipulagsnefndar til um- sagnar. Að þessum málalokum fengnum og með tilliti til þeirra erfiðleika, sem við er að etja viðvíkjandi öllum nýbygging- um vegna yfirstandandi styrjaldar og dýrtíðar, sá sambandsstjórn ekki ástæðu til, að svo stöddu, að gera meira í mál- inu. Árshátíð bankamanna. Árshátíð bankamanna var haldin 6. febrúar s.l. að Hótel Borg, og var hún mjcg fjölmenn og fór hið bezta fram. Varð hagnaður af henni kr. 501,84 og / samþykkti stjórn sambandsins, að nefndur hagnaður skyldi lagður í sjóð sambandsins i þvi trausti, að síðar __________________BANKABLAÐIÐ mætti leita til sambandssjóðs, ef halli kann að verða af síðari árshátíðum. Launabætur. Á hinu liðna starfsári hafa banka- menn orðið aðnjótandi töluverðra launa- bóta eða grunnkaupshækkunar, eins og yfirleitt allir launþegar í landinu. Strax og það varð séð, að gerðardómslögin náðu ekki tilgangi sínum og að dýrtíðin fcr ört vaxandi, komu fram háværar raddir frá launþegum um land allt um grunnkaupshækkanir, í fyrsta lagi með tilliti til þess, að tvívegis höfðu laun þeirra verið raunverulega lækkuð með gengislækkun, þegar þrengdi að at- vinnuvegum landsmanna, og þeir þá tekið því möglunarlítið, en sú ástæða ekki lengur fyrir hendi þar sem hagur atvinnuveganna væri nú með betra móti, svo ekki sé dýpra tekið í árina, og í öðru lagi vegna þess, að verðlags- vísitalan gæfi ekki rétta mynd af dýr- tíðinni vegna þess hvernig hún væri reiknuð út. Gengu hin ýmsu hagsmunasamtök launþega fram fyrir skjöldu í þessu máli og varð sú niðurstaða, að flestir fengu verulegar grunnkaupshækkanir. Það var strax álit sambandsstjórnar, að henni bæri að láta starfsmannafélög bankanna fyrst og fremst koma fram fyrir skjöldu í þessu máli gagnvart stjórnendum bankanna, enda ekki hyggilegt, að hún færi á stúfana í því og bindi hendur hinna einstöku félaga, heldur að hún fylgdist með gangi mál- anna og sæi hvað fram færi hjá öðrum samtökum launamanna. Kom það líka á daginn, að þetta var rétt sjónarmið og fengu bankamenn sæmilegar launabætur miðað við marga

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.