Bankablaðið - 01.12.1971, Side 30
Fréttir úr Búnaðarbankanum
Búnaðarbankinn opnaði nýtt útibú í Mos-
fellssveit 1. apríl 1971. Utibússtjóri var ráð-
inn Páll J. Briem, sem starfað hefur í bank-
anum síðan 1939 og verið m. a. deildarstjóri
í lánadeild.
Þá tók Búnaðarbankinn í notkun nýtt hús-
næði í Búðardal hinn 3. ágúst 1971. Fram-
kvæmdir höfðu staðið yfir í um það bil 1 ár
og kostnaðarverð sem næst áætlun. Húsið er
2 hæðir, 155 m2 að stærð. Á neðri hæð er
afgreiðsla útibúsins og skrifstofa útibússtjóra.
Á efri hæð eru skjalageymslur og kaffistofa,
en hluti af hæðinni er leigður sýslumanns-
embættinu í Búðardal. Uppdrættir að bygg-
ingunni voru allir gerðir í Búnaðarbankan-
um, og hefur Svavar Jóhannsson, skipulags-
stjóri, haft yfirumsjón með verkinu. Utibús-
stjóri er Skjöldur Stefánsson.
Lokið var við síðasta áfanga nýbyggingar
við Hlemm, en það var kaffi- og matsalur á
5. hæð, sem tekinn var í notkun 22. nóv.
1971. Nokkrar tafir höfðu orðið á fram-
kvæmdum vegna tregðu byggingarnefndar
Reykjavíkur á leyfisveitingu fyrir hluta þess-
arar hæðar, en nú er þetta langþráða húsnæði
komið í höfn og nær fullsetið á hverjum
degi.
Aðalfundur Starfsmannafélags Búnaðar-
bankans var haldinn 28. okt. s.l. I skýrslu
formanns kom m. a. fram:
28 BANKABLAÐIÐ