Jazzblaðið - 01.12.1950, Qupperneq 19
Hctukur Morthens
segir frá Englandsferð. — Söng í BBC
Haukur Morthens er nýkominn heim
eftir að hafa dvalið í London í nokkrar
vikur. Hann fór aðallega til að skemmta
sér, en lét hins vegar ekkert tækifæri
ónotað til að heyra góða músík og afla
sér fræðslu.
Blaðið hitti hann að máli og bað
hann að segja eitthvað frá músíklífinu
í London, og sagði hann m. a.:
— Músíklífið er fremur dauft sem
stendur, og vakti þetta athygli mína
hvar sem ég kom. Ég komst í kynni
við hinn fræga hljómsveitarstjóra Ted
Heath, og var það eitt af því fyrsta,
sem hann sagði við mig, að útlitið væri
slæmt. Hann hefur sennilega haldið, að
ætlaði að biðja hann um vinnu með
hljómsveitinni.
— Þú hefur heyrt í hljómsveitinni,
var það ekki?
— Jú, ég hlustaði tvisvar sinnum á
þá. Þeir halda mánaðarlega hljómleika
í Palladíum i London. Þar koma einnig
fram aðrir skemmtikraftar, jafnvel
gamanleikarar, og nefnast hljómleikar
þessir þó „Swing Session". Á seinni
hljómleikunum heyrði ég í Svend As-
musen kvintettinum, en þeir eru á
hljómleikaferðalagi í Englandi um þess-
ar mundir.
— Hvernig voru þeir?
— Reglulega skemmtilegir. Samt
gerðu þeir ekki mikið að því að leika
jazz, heldur lögðu þeir meii’a upp úr
gríninu, og get ég ekki hugsað mér, að
neinum takist það betur en þeim.
— Nokkrar aðrar hljómsveitir, sem
þú heyrðir í?
— Ray Ellington, Tito Burns, Johnny
Dankworth og svo náttúrlega margar
danshljómsveitir.
— Þetta eru þrjár fremstu jazz-
hljómsveitirnar, það hefur verið mjög
skemmtilegt að hlusta á þær?
— Að vísu var það skemmtilegt, en
þótt ótrúlegt megi virðast, þá heyrði ég
þá varla leika jazzlag. Þeir léku allir
fyrir dansi og urðu að þrælast á dægui’-
lögum. Meira að segja er Tito Burns
að mestu leyti hættur við jazzinn — í
bili þó. *
— Hvernig var það, þegar þú söngst
í BBC, hvaða þáttur var þetta?
— Þátturinn heitir „Anything to
declare“, og byggist hann aðallega á því,
að útlendingar koma þar fram og segja
frá högum sínum og hvers vegna þeir
eru staddir í Englandi. Hafi þeir yfir
einhverjum hæfileikum að ráða, ég
meina — séu þeir leikarar, söngvarar
eða eitthvað slíkt, þá spreyta þeir sig
við eitthvað á þeim grundvelli í þættin-
um.
— Þú söngst nokkur lög, ekki satt?
— Jú, ég söng tvö lög eftir Oliver
Guðmundsson, „Góða nótt“ og „Nætur-
kyrrð“, en fyrst flutti ég örlítinn fyrir-
lestur um ísland, eða öllu heldur svar-
aði spurningum.
— Nú, hvernig var það?
— Ja, ég sagði þeim frá hitaveit-
unni, eins og flestir gera, þegar þeir
3azzLLU 15